Segir vaxtagjöldin blóðpeninga

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Sigurður Bogi

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segist telja að það séu blóðpeningar fyrir ríkissjóð að greiða 100 milljarða króna í vaxtagreiðslur á yfirstandandi ári. Þetta sé nánast sama fjárhæð og ætluð er í alla heilbrigðisþjónustu landsmanna á næsta ári. Þetta kom fram í máli ráðherrans á ársfundi sjúkrahússins á Akranesi í dag.

Ráðherra fór nokkrum orðum um efnahagslegar aðstæður þjóðarinnar, meðal annars að hallinn á rekstri ríkissjóðs yrði 180 milljarðar á árinu 2009 og að hann yrði tekinn niður á fimm árum.

„Eðlilega finnst mörgum of hratt farið í þessa vegferð og það er auðvelt að taka undir það. En þegar horft er til þess að vaxtagreiðslur af skuldum ríkissjóðs nema á yfirstandandi ári 100 milljörðum króna, þá hljótum við að vera sammála um að því fyrr sem okkur tekst að rétta þennan halla af, því betra.

100 milljarðar króna í vaxtagreiðslur. Þetta eru í mínum huga blóðpeningar því þetta er nokkurn veginn sama fjárhæð og ætluð er í alla heilbrigðisþjónustu landsmanna á næsta ári, en það eru 93,3 milljarðar króna. Og þessar vaxtagreiðslur munu ekki lækka nema við greiðum niður skuldir með hagræðingu, sparnað og útsjónarsemi að leiðarljósi.

Það er ekki sama hvernig það er gert. Aðhald, sparnaður og niðurskurður mega ekki veikja grunnstoðir velferðarkerfisins þ.m.t.  heilbrigðisþjónustu til frambúðar.

Þetta er leiðarljós ríkisstjórnarflokkanna við fjárlagagerð ársins 2010 og því er aðlögunarkröfunni dreift þannig að 5% krafa er sett á grunnþjónustuna,þ.e. félagsmálin og heilbrigðisþjónustuna, 7% á menntakerfið en 10% á allan annan ríkisrekstur, þ.m.t. stjórnsýsluna alla, líka í heilbrigðisþjónustu og skólakerfi," að sögn Álfheiðar.

Ráðherra fór yfir sparnaðarkröfuna sem reist er á stofnanirnar sem mynda Heilbrigðisstofnun Vesturlands frá næstu áramótum sem svara til 6,3% sparnaði. Um sameiningu stofnananna sagði Álfheiður: „Það er mín skoðun að sameiningin sem hér hefur verið ákveðin og aðlögunarkrafan sem bregðast þarf við í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sé svo mikilvæg að ekki sé á sama tíma ástæða til að gera kröfur til frekari samhæfingar hennar við aðrar stofnanir eða þátttöku í uppstokkun verkefna innan heilbrigðisþjónustunnar. Ég segi að ekki verði gerðar kröfur um slíkt á sama tíma en með því er auðvitað ekki verið að loka á frumkvæði HV til samvinnu eða samþættingar ef óskir standa til þess.”

Ráðherra gerði endurskipulagningu og samvinnu Landspítala og svokallaðra Kragasjúkrahúsa að umræðuefni í ræðu sinni á ársfundinum, og ræddi í þessu sambandi sérstaklega um fæðingarþjónustuna sem veitt er á Akranesi.

„Hér á Akranesi veit ég að rekin er fæðingarþjónusta og kvensjúkdómaþjónusta sem þykir ákaflega góð. Ég veit líka eftir þessa örfáu daga í ráðuneyti heilbrigðismála að það er fullur vilji hjá starfsfólki og stjórnendum að reyna að viðhalda óbreyttri þjónustu, og því góða orði sem fer af henni."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert