Fangelsi fyrir árás á barnsmóður sína
Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun gegn barnsmóður sinni. Staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir manninum, sem einnig var dæmdur til að greiða konunni 1,2 milljónir króna í bætur.
Fram kemur í Hæstarétti, að maðurinn var ákærður fyrir að hafa ráðist að konunni nótt eina í mars á síðasta ári, hrint henni í stofugólfið þar sem hann sparkaði í hana, veitti henni fjölda hnefahögga í höfuð og líkama, reif í hár hennar, sló höfði ítrekað í gólfið. Þá þvingaði hann hana til samræðis með ofbeldi.
Þá var maðurinn ákærður fyrir líkamsárás að morgni sama dags þegar hann veittist að konunni á ný í eldhúsi og sló hana mörgum hnefahöggum, einkum í kvið, bak og höfuð, auk þess að trampa á henni þar sem hún var í hnipri á eldhúsgólfi. Við þetta hlaut hún fjölda áverka.
Hæstiréttur taldi, að frásögn konunnar fyrir dómi hefði verið í öllum atriðum á sama veg og hjá lögreglu, neyðarmóttöku og þeim lækni, sem skoðaði hana strax næsta dag eftir að atvik málsins urðu. Var framburður hennar metinn trúverðugur en framburður mannsins, sem neitaði sök, ótrúverðugur. Taldi dómurinn að lögfull sönnun hefði verið færð fram um að maðurinn hefði gerst brotlegur eins og ákæra sagði til um.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn braut gegn konunni á heimili hennar og árásin stóð yfir í langan tíma. Miklir áverkar voru á konunni eftir árásina, árásin var hrottaleg og unnin á heimili hennar að nóttu til og henni haldið þar nánast í gíslingu með rétt ársgamalt barn sitt.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Innlent Hrottaleg árás og einbeittur vilji
- Föstudagur, 10. júlí 2009, Innlent 4½ árs fangelsi fyrir nauðgun
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Réðist á fyrrum eiginkonu sína
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Réðist á sambýliskonu og börn hennar
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































