Mannabreytingar í utanríkisþjónustunni
Talsverðar mannabreytingar eru og munu taka gildi í íslensku utanríkisþjónustunni á næstunni. Nokkrir sendiherrar munu láta af störfum og nýir taka við. M.a. mun Tómas Ingi Olrich, sendiherra Íslands í Frakklandi, láta af störfum um næstu mánaðarmót vegna aldurs.
Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu mun Þórir Ibsen, fyrrum skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, taka við sendiherrastöðunni.
Þá verða breytingar í íslenska sendiráðinu í Helsinki í Finnlandi. Hannes Heimisson sendiherra mun snúa aftur til Íslands til að starfa hjá utanríkisráðuneytinu. Elín Flygenring, sem var fastafulltrúi hjá fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassbourg, mun taka við sendiherrastöðunni í Helsinki. Fastanefndinni hefur verið lokað.
Sveinn Björnsson, sendiherra Íslands í Vín í Austurríki, mun láta af störfum vegna aldurs. Við honum tekur Stefán Skjaldarson.
Breytingarnar í Helsinki og Vín eru að taka gildi þessa dagana.
Guðmundur Eiríksson, sem hefur starfað í utanríkisráðuneytinu, mun taka við embætti sendiherra Íslands á Indlandi 1. nóvember. Sendiráðið hefur verið sendiherralaust í nokkra mánuði. Gunnar Pálsson, sem var sendiherra á Indlandi, fór fyrir nokkru til New York, þar sem hann er nú fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Þá hefur komið fram að Benedikt Jónsson, sem verið hefur ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, hefur tekið við sendiherrastöðunni í London. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, fyrrverandi sendiherra í London, fer til Brussel þar sem hann mun starfa hjá Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA).
Þá má minnast þess að í apríl sl. lokaði sendiráði og fastanefnd Íslands í Róm. Jafnframt er búið að loka sendiráðinu í Pretoríu í Suður-Afríku.
Bloggað um fréttina
-
Finnur Bárðarson Þar á ekkert að spara -
Ágúst Ásgeirsson Afburða fulltrúi Íslands
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. janúar 2009, Innlent Eiður Guðnason hættir
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent Uppstokkun í utanríkisþjónustunni
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent Einar Gunnarsson nýr ráðuneytisstjóri
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Flyst til á milli ráðuneyta
- Miðvikudagur, 2. september 2009, Innlent Ingvi S. Ingvarsson látinn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































