Verulega skert þjónusta við sjúklinga

Hjúkrunarfræðingar vara við afleiðingum af skerðingu á fjárframlögum til Landspítala
Hjúkrunarfræðingar vara við afleiðingum af skerðingu á fjárframlögum til Landspítala Árni Sæberg

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent frá sér ályktun þar sem varað er við þeim alvarlegu afleiðingum sem stórfelld skerðing á fjárframlögum til Landspítala, samkvæmt nýframlögðu fjárlagafrumvarpi, feli í sér. 

„Undanfarin ár hefur Landspítalanum verið gert að hagræða svo í rekstri að nú er komið að þolmörkum,“ segir í ályktuninni. „Ef boðuð lækkun á fjárframlögum til Landspítalans nær fram að ganga mun það leiða til verulega skertrar þjónustu við sjúklinga og þar með ógna öryggi þeirra. Sá árangur sem náðst hefur í heilbrigðisþjónustunni byggir fyrst og fremst á þekkingu heilbrigðis-starfsmanna. Niðurskurðurinn sem nú er boðaður getur leitt til þess að dýrmæt, sérhæfð þekking starfsmanna tapist úr landi, sem tekur ár og áratugi að byggja upp að nýju. “

Þá segir í ályktuninni að Landspítalinn sé sjúkrahús allra landsmanna og það öryggisnet sem þjóðin reiði sig á. Því sé nauðsynlegt að Landspítalanum sé tryggt það rekstrarfé sem þurfi til að mæta þeim kröfum sem til hans séu gerðar og viðhalda þeim árangri sem náðst hafi í heilbrigðisþjónustunni. 

„Stjórn Fíh sendi í lok júní síðastliðnum heilbrigðisráðherra áherslur og tillögur sínar vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Þar var lögð áhersla á öryggi og gæði þjónustunnar, endurskoðun á heilbrigðiskerfinu og greiðslufyrirkomulagi vegna heilbrigðisþjónustu, forgangsröðun verkefna og sameiningu heilbrigðisstofnana. Stjórn Fíh ítrekar þessar tillögur og vilja til frekari samvinnu og samráðs í þeim erfiðu verkefnum sem framundan eru.“

Ályktunin í heild sinni

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert