SI: Markvisst unnið gegn áliðnaði
Ekki verður annað séð en að það sé stefna ríkisstjórnarinnar að vinna markvisst gegn áliðnaði og öðrum orkufrekum iðnaði á Íslandi í bráð og lengd. Ákvarðanir um framlengja ekki viljayfirlýsingu vegna Bakka, fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur og tillaga um orku- og auðlindaskatt koma fyrirhuguðum framkvæmdum í uppnám segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, á vef samtakanna.
Hann segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að framlengja ekki viljayfirlýsinguna vegna Bakka setja uppbyggingu á norðausturlandi í óvænt uppnám. Þá setur ákvörðun umhverfisráðherra frá 29. september um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur verulegt strik í reikninginn vegna álvers Norðuráls í Helguvík og annarra framkvæmda á Suðurnesjum s.s. uppbyggingu gagnavers segir Jón Steindór.
„Líkur benda raunar til að ákvörðun ráðherra standist ekki lög og er því með öllu óskiljanleg.“ Síðast en ekki síst er það vanhugsuð og illa undirbúin tillaga sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar um orku- og auðlindaskatta. Augljóst er að hitann og þungann af þeirri skattheimtu er þeim stóriðjufyrirtækjum sem hér starfa ætlað að bera. Öll hafa þau hafið starfsemi hér á landi samkvæmt sérstökum samningum og lögum. Öll hafa þau lýst yfir áformum um frekari uppbyggingu hér á landi. Við þörfnumst erlendra fjárfestinga og okkur er líka nauðsynlegt að skapa Íslandi orðspor sem ríkis þar sem óhætt er að byggja upp starfsemi til langs tíma. Hér þurfi fjárfestar ekki að eiga á hættu að leikreglum sé breytt eftir á eins og ríkisstjórnin boðar núna," að því er fram kemur á vef SI.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson SI: Markvisst unnið gegn áliðnaði/stefna V.G. er bara svo!!!!!!!
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 27. september 2009, Innlent Samtök iðnaðarins gagnrýna vinnubrögð stjórnvalda harðlega
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Vonbrigði vegna umhverfisráðherra
- Mánudagur, 31. maí 2010, Innlent Framkvæmdastjóri SI vill lengja umsóknarfrest í skólum
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Innlent Auglýsing tekin úr umferð
- Sunnudagur, 25. október 2009, Innlent Reyna að tryggja friðinn í dag
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































