Yoko söng Give Peace a Chance

Yoko Ono syngur í Hafnarhúsinu í kvöld.
Yoko Ono syngur í Hafnarhúsinu í kvöld. mbl.is/Ómar

Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, batt endahnútinn á tónleika, sem haldnir voru í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í kvöld með því að syngja lagið Give Peace a Chance ásamt listamönnunum, sem komu fram á tónleikunum.

Bauð Yoko Ono til tónleikanna í tilefni fæðingardags Lennons, 9. október. Tónleikarnir marka einnig upphaf hátíðarinnar Ljómandi borg.

Fresta varð athöfn vegna veðurs í Viðey í kvöld, þar sem kveikja átti á friðarsúlunni. Þó að enginn var athöfnin var kveikt á súlunni engu að síður, en formleg athöfn mun fara fram í Viðey á morgun. Verða fríar ferðir út í eyna um helgina, í boði Yoko Ono.

Yoko Ono tók lagið í Hafnarhúsinu í kvöld.
Yoko Ono tók lagið í Hafnarhúsinu í kvöld. mbl.is/Ómar
mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert