Amnesty reisir hreysi í Smáralind

Í Smáralindinni eru Íslendingar minntir á mannréttindabrot sem eru til …
Í Smáralindinni eru Íslendingar minntir á mannréttindabrot sem eru til komin vegna fátæktar. Ómar Óskarsson

Íslandsdeild Amnesty International reisti um helgina HREYSI í Smáralind. Viðburðinn er liður í nýrri herferð samtakanna, Krefjumst virðingar: Mannréttindi gegn fátækt, sem tekur á tengslum mannréttindabrota og fátæktar.

Í HREYSINU er boðið upp á afrískt te og trumbuslátt frá Miðbaugs-Gíneu. Sýndar eru ljósmyndir og fólki boðið að skrifa nafn sitt á stærðarinnar „hús undirskriftanna”.

Hundruð þúsunda Afríkubúa um alla álfuna missa húsnæði sitt á hverju ári þegar þeir eru þvingaðir úr húsum sínum af yfirvöldum. Oftast fer útburðurinn fram án þess að farið sé að lögum og reglum, án viðvarana, viðræðna og skaðabóta. Í stað þess að bæta húsnæðiskost fólks og lífsskilyrði, sérstaklega þeirra sem búa við sárustu fátæktina, hrekja margar ríkisstjórnir fólk út í enn sárari fátækt. Fólk er þvingað af heimilum sínum án þess að annað húsnæði sé í boði og samfélög leysast upp. Fólkið missir ekki einungis heimili sín og þær fáu veraldlegu eigur sem því hefur hlotnast, heldur glatar það ennfremur samfélagslegum stuðningi. Þvinguðum brottflutningum fylgja oft skortur á aðgangi að hreinu vatni, fæði, skolpræsum, atvinnu, heilbrigðisþjónustu og menntun.

Á undanförnum árum hefur Amnesty International skráð tilvik um fjöldaútburði í Angóla, Tsjad, Miðbaugs-Gíneu, Gana, Kenía, Nígeríu, Súdan, Svasílandi og Simbabve. Fulltrúar yfirvalda  sem bera fólk út í Afríku beita oft óhóflegu ofbeldi og jafnvel skotvopnum. Amnesty International hefur skráð tilfelli þar sem fólk hefur látið lífið í aðgerðunum eða í kjölfar þeirra, þeirra á meðal eru börn.

Þvingaður brottflutningur fólks af heimilum sínum er gróft brot á mannréttindum sem samstundis ber að stöðva. Verði ríkisstjórnir ekki látnar bera ábyrgð á þvinguðum  brottflutningi verður fólk áfram fyrir grófum mannréttindabrotum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert