Íslendingur alvarlega slasaður í Noregi

38 ára gamall Íslendingur liggur alvarlega slasaður á Háskólasjúkrahúsinu í Stafangri í Noregi eftir umferðarslys rétt fyrir klukkan 9 í morgun.  Samkvæmt fréttavef Stavanger Aftenblad var maðurinn á hjóli í miðborg Stafangurs á mikill ferð þegar hann lenti í árekstri við bíl sem ekki sinnti stöðvunarskyldu. 

Lögreglan í Stafangri hefur staðfest við Morgunblaðið að maðurinn sem slasaðist er íslenskur en búsettur í Stafangri. Hann  hlaut alvarlega höfuðáverka og var fluttur á bráðamóttöku en nánari upplýsingar fást ekki um líðan hans. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglunni í Stafangri. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert