Færeyingar fylgjast grannt með þróun mála hér

Jóhanna Sigurðardóttir og Kaj Leo Johannesen á Þingvöllum í dag. stækka

Jóhanna Sigurðardóttir og Kaj Leo Johannesen á Þingvöllum í dag.

Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, sagði á fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Þingvöllum í dag, að í Færeyjum væri fylgst grannt með framgangi mála á Íslandi, sérstaklega nú þegar Ísland hafi sótt um aðild að Evrópusambandinu. Úrslit mála í aðildarferlinu gætu haft veruleg áhrif á evrópupólitíska umræðu í Færeyjum.

Jóhanna sagði að samstarfsmöguleikar milli Íslands og Færeyja hefðu ekki verið nýttir til fullnustu. Í viðræðum við Evrópusambandið gætu einnig falist nýjir möguleikar á þessu sviði og haft yrði náið samráð við Færeyinga um Evrópumálin á næstu misserum.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir, að að viðræðufundi þeirra Jóhönnu og Kaj Leo hafi verið fjallað um ýmis sameiginleg mál Færeyinga og Íslendinga á sviði heilbrigðismála, mennta- og háskólasamvinnu og ekki síst samskipta í sjávarútvegsmálum. Lögð var áhersla á að gerður yrði tvíhliða samningur milli þjóðanna um heilbrigðismál á grundvelli gildandi viljayfirlýsingar, en samstarf er þegar hafið milli Landspítala og Landssjúkrahúss Færeyja. Þá var skipst á skoðunum um reynslu þjóðanna af því að ganga í gegnum kreppu og glíma við fólksflótta. Einnig var sérstaklega rætt um framkvæmd Hoyvíkursáttmálans milli Færeyja og Ísland.

Jóhanna ítrekaði þakkir Íslendinga til Færeyinga vegna lánveitingar þeirra til Íslands og sagði m.a. að þverpólitísk samstaða Færeyinga um þetta lán, sem veitt var skilyrðislaust þegar allir aðrir snéru við Íslendingum baki í fyrra, sýni hug þeirra betur en nokkur orð. „Þessi ákvörðun Færeyinga sýndi að þeir eru vinir í raun. Það kom ekki á óvart og því gleymum við ekki," sagði hún

Haft er eftir Kaj Leo Johannesen  að tilgangurinn með heimsókn hans hingað væri að bera saman bækur um ástandið í stjórnmálum og efnahagsmálum og ræða framtíðarmálefni þjóðanna. Með samstarfi stæðu vinir sterkari en ella í heiminum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...
Sendill
Nissan Vanette 2300 td '98, ekinn 190. Verð= tilboð eða skipti. 7775919...
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
Toyota Yaris DIESEL árgerð 2006
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Silf...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...