Ætlaði að smygla fíkniefnum inn á Litla-Hraun
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu á þrítugsaldri í mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að reyna að smygla fíkniefnum, þar á meðal nærri 35 grömmum af amfetamíni, inn í fangelsið að Litla-Hrauni.
Konan var ákærð fyrir að reyna í mars á síðasta ári að smygla tveimur pakkningum í leggöngum sínum inn í fangelsið. Pakkarnir fundust eftir fíkniefnahundur hafði látið vita að eitthvað væri athugavert.
Konan mætti ekki fyrir dóminn við þingfestingu málsins og var hún í kjölfarið handtekin og flutt fyrir dóm. Þá játaði hún sök. Sagðist hún þá hafa verið í meðferð undanfarna mánuði, hún ynni að því að komast á réttan kjöl auk þess sem hún ætti von á barni að mánuði liðnum. Hún búi nú í tilsjónaríbúð á vegum félagsmálayfirvalda og fái mikinn stuðning sem hún nýti sér, auk þess sem hún muni fá áframhaldandi stuðning í meðferð og varðandi barnið eftir fæðingu þess.
Konan hefur áður hlotið dóma og rauf skilorð eldri dóms með þessu broti.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. febrúar 2010, Innlent Reyndi að smygla fíkniefnum inn á Litla-Hraun
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Fanga ekki refsað fyrir fíkniefnabrot
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Reyndi að smygla fíkniefnum inn í fangelsi
- Fimmtudagur, 4. desember 2008, Innlent Reyndi að smygla fíkniefnum inn í fangelsi
- Mánudagur, 1. desember 2008, Innlent Ætluðu að smygla fíkniefnum inn á Litla-Hraun
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































