Meira veitt og aukin verðmæti

mbl.is

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði, metinn á föstu verði, var 18,5% meiri en í september 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn í september 2009 var 77.392 tonn samanborið við 68.052 tonn í sama mánuði árið áður, að því er fram kemur í frétt Hagstofu Íslands.

Meira veitt af þorski í ár

Botnfiskafli jókst um rúm 4.000 tonn frá september 2008 og nam tæpum 36.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 14.000 tonn, sem er um 4.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam rúmum 6.000 tonnum sem er um 1.600 tonnum minni afli en í september 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam tæpum 5.000 tonnum en rúm 5.000 tonn veiddust af karfa, sem er um 700 tonnum meiri afli en í september 2008.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 38.000 tonnum sem er um 5.000 tonna aukning frá því í september 2008. Síldaraflinn nam rúmum 32.000 tonnum og jókst um 5.500 tonn. Um 4.000 tonn veiddust af makríl, sem er tæpum 2.000 tonnum minni afli en í september 2008.

Flatfiskaflinn var 2.665 tonn í september og jókst um 747 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 907 tonnum samanborið við um 1.500 tonna afla í september 2008.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert