Skýrslu rannsóknarnefndar seinkar
Tryggvi Gunnarsson, Páll Hreinsson og Sigríður Benediktsdóttir sitja í rannsóknarnefndinni. mbl.is/Ómar
Gagnaöflun rannsóknarnefndar Alþingis hefur reynst tímafrekari og yfirgripsmeiri en reiknað var með í fyrstu og verður ekki unnt að láta Alþingi í té fullburða skýrslu 1. nóvember eins og stefnt var að. Er nú miðað við að skýrslan komi fram eigi síðar en 1. febrúar.
Þetta kom fram á fundi forsætisnefndar Alþingis og formanna þingflokkanna með rannsóknarnefndinni í morgun. Fram kom á blaðamannafundi nefndarinnar nú eftir hádegið, að enn eigi eftir að yfirheyra fólk vegna rannsóknarinnar og einnig er verið að bíða eftir gögnum frá útlöndum. Meðal annars bárust gögn frá fjármálaeftirliti Lúxemborgar í gær.
Nefndarmenn sögðu ljóst, að einhverjum málum yrði vísað þaðan til sérstaks saksóknara. Þá sé einnig ljóst, að skýrsla nefndarinnar, sem væntanlega verður birt í febrúar, verði ekki tæmandi og ýmsum spurningum verði þá enn ósvarað og þörf á frekari rannsókn.
Búið er að ljúka hluta skýrslunnar en hún er nú þegar orðin um 1000 blaðsíður að lengd. Þeir sem fjallað er um í skýrslunni hafa andmælarétt og munu þeir því á næstu vikum fá skýrslukafla til yfirlestrar.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði í upphafi þingfundar í dag, að þess megi vænta að á næstunni verði lagt fram frumvarp til breytinga á lögum sem gildi um störf rannsóknarnefndarinnar, þar sem skilafresturinn verði framlengdur. Að auki sé áætlað að bæta við lögin ákvæði sem fjalla um frágang, varðveislu og aðgang að þeim viðamiklu gagnagrunnum sem orðið hafi til í störfum nefndarinnar, svo og um önnur lagatæknileg atriði.
Ásta Ragnheiður sagði, að á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokkanna hefði verið fjallað um hvernig standa á að þinglegri meðferð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Samstaða sé um mikilvægi þess að sá farvegur verði markaður fyrir fram áður en skýrslan verður gerð opinber. Því megi vænta þess að á næstu dögum verði lögð fram þingsályktunartillaga sem taki á þessu atriði. Sú tillaga mun ganga út frá því að skipuð verði sérstök þingmannanefnd sem falið verði að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Bloggað um fréttina
-
Jónas Yngvi Ásgrímsson Vanhæf rannsóknarnefnd -
Auðun Gíslason Leyniskjal? -
Daði Einarsson Hvað er verið að fela? -
Stefán Friðrik Stefánsson Skýrslu rannsóknarnefndar seinkað -
Árelíus Örn Þórðarson Það líklegast á að fegra sannleikann og hagræða? -
Axel Jóhann Axelsson Rannsóknarskýrslan verði öllum aðgengileg -
Gísli Foster Hjartarson Seinkun - fyrning! -
Jenný Stefanía Jensdóttir Ég mótmæli plottinu -
Gunnar Th. Gunnarsson Ég sem hlakkaði svo til -
Magnús Óskar Ingvarsson Verstu fréttir allrar Íslandssögu látnar bíða -
Sigmar Þormar Ansi mikil seinkun -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Verður HVÍTBÓKIN yfirklór sjálfstæðismanna? -
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Því ekki bráðabirgðaskýrsla? -
Þórarinn Þ Gíslason Á ÉG VIRKILEGA AÐ TRÚA ÞVÍ SEM AÐ ÉG HELD ...
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Fyrsta eintakið afhent
- Fimmtudagur, 15. júlí 2010, Innlent Skýrslu um fiskveiðistjórn seinkar
- Miðvikudagur, 7. október 2009, Innlent Ráð gert fyrir fleiri verkefnum
- Mánudagur, 21. september 2009, Innlent Býst við skýrslu nefndar í byrjun nóvember
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Vinnsla skýrslu rannsóknarnefndar á áætlun
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































