Siðareglur fyrir borgarfulltrúa
Borgarráð hefur einróma samþykkt siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg og að þær verði lagðar fyrir borgarstjórn til staðfestingar og borgarfulltrúa til undirritunar á fundi borgarstjórnar nk. þriðjudag.
Borgarráð hefur einnig samþykkt að settar verði reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum þeirra utan borgarstjórnar eins og gert hefur verið á Alþingi og mun forsætisnefnd ljúka útfærslu slíkra reglna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Þar kemur fram að borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna fögnuðu í sameiginlegri bókun að skráðar séu siðareglur fyrir kjörna fulltrúa og að samstaða hafi ríkt á vettvangi borgarstjórnar um mikilvægi slíkra reglna, eins og fram komi í samþykkt borgarstjórar frá 5. júní 2007.
„Þetta er mjög langþráð. Enda var ég nú ekki búinn að vera mjög lengi í borgarstjórn þegar ég lagði fram tillögu um það að það yrðu kannaðir kostir og gallar þess að skrá siðareglur fyrir borgarstjórn,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Rifjar hann upp að heilmikil vinna hafi verið lögð í það að útfæra slíkar siðareglur. „Við fengum með okkur stéttarfélögin, Samtök atvinnulífsins og fulltrúa Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, skoðuðum erlendar fyrirmyndir og gerðum drög að því hvernig þetta gæti litið út og hvernig ætti að haga eftirliti og hvað annað þyrfti að gera til gera úrbætur í stjórnkerfinu hvað þetta varðar.
Síðan hefur það nokkuð reynt á þolinmæðina á þessu kjörtímabili að það hefur tekið tíma sinn að koma þessu í land, en núna þegar það liggur fyrir er maður auðvitað mjög ánægður. Með þessu er Reykjavíkurborg að klára vinnu sem það hóf fyrst allra sveitarfélaga, en um leið er mjög nauðsynlegt að við klárum reglur um skráningu á hagsmunatengslum, sem þurfa til fyllingar á þessu.
Það er mjög mikilvægt að það verði gerðar breytingar á sveitarstjórnarlögum til þess að setja upp sameiginlega siðanefnd fyrir sveitarfélögin þannig að það sé skýr farvegur fyrir álitamál og svo er ýmislegt sem þarf að skerpa á í stjórnsýslunni,“ segir Dagur og nefnir í því samhengi m.a. að skerpa þurfi á vernd flautara (þ.e.whistle blowers) auk þess sem herða þurfi á innkaupa- og útboðsreglum.
Í tilkynningu borgarinnar kemur fram að markmið siðareglnanna sé að skrá og skilgreina þá háttsemi sem kjörnir fulltrúar vilji sýna af sér við öll sín störf og gert sé ráð fyrir að þeir undirgangist siðareglurnar með undirskrift sinni og lýsi því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi. Í siðareglunum er meðal annars fjallað um starfsskyldur kjörinna fulltrúa, valdmörk, hagsmunaárekstra, gjafir og fríðindi og trúnað.
Fyrri drög að siðareglum, sem starfshópur borgarráðs um siðareglur hafði unnið, voru send öllum borgarstjórnarflokkum til umsagnar. Umsagnir um drög að siðareglum bárust frá borgarstjórnarflokkum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna.
Umsagnir borgarstjórnarflokkanna voru teknar til umræðu í starfshópi borgarráðs um siðareglur auk þess sem drögin hafa fengið umfjöllun forsætisnefndar. Jafnframt því að gera nokkrar ábendingar til úrbóta á fyrirliggjandi texta lýstu flokkarnir sig reiðubúnir til að láta útfæra reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar. Samfylkingin lagði til útfærðar tillögur þessa efnis. Drög að skráningareglum þarfnast nánari umfjöllunar og verða tekin fyrir í forsætisnefnd.
|
|
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg |




































