Frumvarp um skuldir lagt fram
mbl.is
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, lagði í dag fram frumvarp á Alþingi sem miðar að því jafnvægi komist á virði eigna og greiðslugetu annars vegar og fjárskuldbindinga einstaklinga, fyrirtækja og heimila hins vegar.
Haldinn var stuttur fundur á Alþingi í dag þar sem nokkur þingskjöl voru lögð fram, þar á meðal þetta frumvarp en efni þess hefur verið áður kynnt í meginatriðum. Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir, að Íbúðalánasjóði verði heimilt að setja á fót opinbert hlutafélag sem hafi að markmiði fjármögnun og endurfjármögnun íbúðalána fyrir fjármálafyrirtæki og Íbúðalánasjóð.
Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. að einstaklingar, heimili og fyrirtæki séu í flestum tilvikum þolendur í því umróti sem nú er í efnahagslífinu. Hugsanlega sé hægt að segja að allir þessir aðilar hefðu átt að fara varlegar í skuldsetningu, notkun erlends lánsfjár og fjárfestingum. Líta verði hins vegar til þess að þessar ákvarðanir voru teknar við aðrar efnahagsaðstæður og aðrar væntingar en nú eru og ávallt sé auðvelt að vera vitur eftir á.
Þá sé mikilvægt að átta sig á því að stór hluti íslenskra fyrirtækja sé í miklum skuldavanda. Óhugsandi sé að beita alfarið við úrlausn þessara mála hefðbundnum þrotaaðferðum sem felist í fjárnámi, nauðasamningum, og gjaldþrotameðferð. Slíkt yrði allt of tímafrekt og mundi stífla dómskerfi landsins. Jafnframt mundi slíkt í mjög mörgum tilvikum ekki vera hagfelldasta leiðin fyrir kröfueigendur, bæði einkaaðila og fjármálafyrirtæki, þar sem víst má telja að mikil verðmæti mundu glatast við beitingu þessara úrræða.
„Þessi staða kallar því á annað verklag en hefðbundin þrotameðferð. Raunhæfasta leiðin er að heimila kröfueigendum, fjármálafyrirtækjum og almennum kröfuhöfum, m.a. að gefa eftir kröfur ef ljóst er að gjaldþol eða tryggingar eru ekki til staðar til að inna af hendi endurgreiðslur af þeim og önnur úrræði duga ekki, svo sem skuldbreyting. Hér væri að sjálfsögðu um tímabundna ráðstöfun að ræða sem miðaðist við að leysa þann vanda sem myndaðist í kjölfar efnahagshrunsins," segir m.a. í frumvarpinu.
Bloggað um fréttina
-
Velvakandi Ekki aðeins þeir óhóflega skuldsettu! -
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Alltaf batnar það, hver samdi þessi " lög " ? -
Frjálshyggjufélagið Mannfjandsamlegt frumvarp -
Axel Pétur Axelsson Öfugur endi -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Efnahagsaðstæður og væntingar voru aðrar....
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Vilja skoða eftirgjöf skattaskulda
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent VG mótmælir frumvarpi um fjármálafyrirtæki
- Föstudagur, 29. maí 2009, Innlent Verðtrygging verði 4% að hámarki
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Greiðslujöfnunarfrumvarp samþykkt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































