Tilkynningum um vændi hefur fjölgað
Eftir Jón Pétur Jónsson - jonpetur@mbl.is„Það er greinileg aukning í tilkynningum [undanfarna mánuði] til lögreglu um vændisstarfsemi. Við bregðumst við því með því að rannsaka þessi mál,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann gefur hins vegar ekki upp í hverju aðferðir lögreglu séu fólgnar.
Greiningardeild ríkislögreglustjóra segir að sterkar vísbendingar séu um að skipulögð glæpastarfsemi sé að færast í vöxt hér á landi. Þá segist deildin búa yfir staðfestum upplýsingum þess efnis að götuvændi sé stundað í Reykjavík. Það er hins vegar tekið fram að götuvændi sé takmarkað, enn sem komið er.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra, segir að vændi og skipulögð glæpastarfsemi sé fljót að vinda upp á sig fái starfsemin að vera óáreitt. „Það eru sterkar vísbendingar um að skipulögð glæpastarfsemi færist í vöxt hérna. Og vændi er ekkert undanskilið þeirri skipulögðu glæpastarfsemi,“ segir Ásgeir.
Hann tekur fram að mál sem tengist vændi hafi sjaldan skotið upp kollinum hérlendis en menn óttist að slík starfsemi tengist erlendum glæpahópum. Þeim fylgi einnig önnur ólögleg starfsemi á borð við fíkniefnasölu og mansal. Aðspurður um vændisstarfsemi segir hann allar líkur á því að um samvinnu sé að ræða á milli íslenskra og erlendra aðila.
Friðrik Smári tekur undir það að skipulögð glæpastarfsemi hafi færst í vöxt á höfuðborgarsvæðinu. „Við leggjum sífellt meiri áherslu á að rannsaka slíkt. Það voru skipulagsbreytingar gerðar í vor á embættinu. Nú er miðlæg rannsóknardeild hjá okkur sem rannsakar alvarleg mál, þar með skipulagða glæpastarfsemi,“ segir Friðrik Smári og bætir við að lögreglan bregðist við eins og hægt sé.
Friðrik Smári bendir á að vændi sé löglegt á Íslandi en það sé hins vegar bannað að auglýsa slíka þjónustu eða kaupa hana. Því beini lögreglan sjónum sínum sérstaklega að þeim sem kaupa vændi og þá sem hafa milligöngu um slíkt.
Hann bendir á að þróunin hér á landi sé sú sama og í nágrannaríkjunum, þar sem þetta er vandamál. Íslendingar verði einnig að kljást við vandamál eins og skipulagða glæpastarfsemi og vændi. Þetta berist hins vegar seinna til Íslands.
Bloggað um fréttina
-
Baldur Hermannsson Lögleiðum vændi og losnum við dólgana -
Guðbjörn Jónsson Innstreymi vændis og glæpa, í boði skattgreiðenda ??? -
Jóhannes Guðnason Eina leiðin er að lögleiða vændi og losna við dólgana.???????????????? -
Kristin stjórnmálasamtök Björn Bjarnason ætti að biðjast afsökunar á ástandi vændismála
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. mars 2010, Innlent Mansal að festast í sessi hér
- Föstudagur, 16. október 2009, Innlent Götuvændi stundað í Reykjavík
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Ekki ráðist í rannsókn vegna Vikumálsins
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Ítrekað bent á ógn af glæpastarfsemi
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Innlent „Leyniþjónusta“ enn upp á yfirborðið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































