Hart deilt um skuldir trillukarla
mbl.is/Þorkell
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.isBankar hafa að undanförnu boðið eigendum smábáta talsverða niðurfærslu á höfuðstól lána. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Kaupþing boðið nokkrum fjölda smábátaeigenda 35-45% niðurfærslu á höfuðstól gengistryggðra lána, en Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur að undanförnu aðstoðað nokkra tugi manna úr sínum röðum í samningaviðræðum við banka.
Aðspurður neitar Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, þessu ekki. „Lánastofnanir hafa boðið mönnum leiðréttingu lána, en það er oftast bundið þeim skilyrðum að menn samþykki að lánin verði færð yfir í verðtryggðar íslenskar krónur. Það hugnast mönnum ekki, nema til komi viðunandi vaxtakjör," segir Örn.
Vilja þétta raðirnar
Í ræðu sinni á ársfundi LS fyrir helgi sagði formaðurinn, Arthur Bogason, að við gengishrun krónunnar hefðu skuldir sjávarútvegsfyrirtækja breyst í hrein og klár skrímsli.
Á síðustu mánuðum, í tíð Jóns Bjarnasonar sem sjávarútvegsráðherra hefur þrýstingur aukist mjög á smábátaeigendur um að þeir færi lán sín í íslenskar krónur og breyti skilmálum. „Enn er mér ókunnugt um að nokkur smábátaeigandi hafi samþykkt slíkt þrátt fyrir að í boði væri umtalsverð niðurfærsla láns," sagði Örn á ársfundinum. Stjórn LS reynir nú að þétta raðir trillukarla gegn bönkum og yfirvöldum, svo þeir standi sterkari sameinaðir en sundraðir gegn þrýstingnum.
„Við hyggjumst á næstunni ræða við bankastjóra nýju bankanna almennt um skuldastöðuna hjá smábátaeigendum og okkar hugmyndir um leiðréttingu," segir Örn í samtali við Morgunblaðið. Á ársfundinum útlistaði hann þær: að erlend lán verði leiðrétt, höfuðstóll miðist við 1. mars 2008, mismunur á vaxtagreiðslum, sem greiddar hafa verið í frystingu og leiðréttum höfuðstól, verði notaður til að greiða niður höfuðstólinn enn frekar og að vextirnir verði óbreyttir.
„Ég tel að allir þeir sem ekki voru í vandræðum með afborganir 1. mars 2008 ættu að geta staðið í skilum með þessum hætti," segir hann.Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Maður bíður eftir hringingu -
Kristinn Pétursson Kaupþing kemur faglega til móts við viðskiptavini -
Marinó G. Njálsson Fordæmi sett fyrir heimilin í landinu?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. júní 2010, Innlent Undrast viðbrögð við dómi
- Miðvikudagur, 27. maí 2009, Innlent Tillaga um niðurfellingu lögð fram
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Innlent Vill fella niður 4 milljónir af höfuðstól húsnæðislána
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Hindrunum verið rutt úr vegi
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Arion banki boðar breytingar á lánum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































