Um 500 steinum stolið á Teigarhorni

Geislasteinar.
Geislasteinar.

„Það er ekkert eftir," segir Jónína Björg Ingvarsdóttir, en hún komst að því á föstudagskvöld að dýrmætu steinasafni þeirra hjóna á Teigarhorni við Berfjörð hafði verið stolið. Hún metur safnið á um 15 milljónir króna og segir það hafa verið ótryggt.

„Um 500 steinar hafa verið teknir," segir Jónína Björg og bætir við að hreinsað hafi verið út úr sýningarskápum og af nýuppstilltu söluborðinu.   „Þetta eru menn sem þekkja greinilega vel til," segir Jónína Björg. Lögreglan var kölluð til og málið er í rannsókn.

Hjónin hafa verið með ferðatengda þjónustu á Teigarhorni undanfarin 17 ár. Jónína Björg segir að á þessum tíma hafi þau komið sér upp fágætu steinasafni. Eiginmaðurinn sé krabbameinssjúklingur og vegna læknismeðferðar hafi þau lítið geta verið á bænum í sumar og hafi farið alfarin suður í byrjun ágúst. Áður hafi þau gengið vandlega frá öllu og skemman, þar sem steinarnir hafi verið geymdir, hafi verið læst auk þess sem járnhlerar hafi verið settir fyrir gluggana. .

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert