AFL stefnir Landsvaka
AFL Starfsgreinafélag hyggst stefna sjóðsstjórnum Landsvaka, er önnuðust upplýsingagjöf til félagsins og fóru með fjármuni þess, til greiðslu bóta vegna þeirra fjármuna er félagið tapaði við uppgjör sjóðsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri félagsins, sendi frá sér nú undir kvöld, en málshöfðunin var samþykkt á stjórnarfundi AFLs Starfsgreinafélags fyrr í kvöld.
Í samþykkt sem stjórnin gerði kemur fram að grundvöllur málshöfðunar sé að félagið telji að umræddir sjóðsstjórar hafi blekkt félagið til áframhaldandi viðskipta þegar ljóst hafi verið að eignasafn sjóðsins hafi ekki verið í samræmi við lýsingar og sjóðurinn stefndi í óefni.
Ennfremur telur félagið að verulega óeðlilegt útstreymi hafi verið síðustu fjóra daga í starfsrækslu sjóðsins og ljóst að innherjaupplýsingar hafi haft áhrif sem juku enn á tap annarra.
Grundvöllur málshöfðunarinnar eru, að því er fram kemur í tilkynnignu AFLs, gögn sem AFL Starfsgreinafélag hefur fengið afhent frá Landsbankanum í kjölfar málshöfðunar félagsins á hendur bankanum til að fá afhentar upplýsingar um samsetningu eigna sjóðsins vikurnar fyrir hrun. Þær upplýsingar fengust afhentar fyrir skömmu.
Samþykkt stjórnarinnar frá því fyrr í kvöld er svohljóðandi:
„Stjórn AFLs Starfsgreinafélags felur framkvæmdastjóra félagsins í samráði við lögmenn AFLs að undirbúa og hefja málsókn á hendur þeim sjóðsstjórum Landsvaka sem önnuðust um sjóði félagsins og upplýsingagjöf til AFLs.
Ennfremur samþykkir stjórn AFLs að fela lögmönnum félagsins að gæta hagsmuna félagsins gagnvart uppgjöri Landsbankans þar sem svo virðist sem reglur Landsvaka um áhættudreifingu hafi verið brotnar.
Stjórn AFLs Starfsgreinafélags samþykkir að fela lögmanni AFLs, að ganga frá sátt við Landsbanka Íslands / Landsvaka vegna málshöfðunar AFLs varðandi upplýsingar um meðferð peningamarkaðssjóða Landsvaka.“
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. október 2009, Innlent Afl ekki með samning við Landsvaka
- Þriðjudagur, 20. október 2009, Innlent Yfir 50% lánað til skyldra aðila
- Sunnudagur, 14. desember 2008, Innlent AFL stefnir Landsbanka og Landsvaka
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Tekist á um yfirlit eigna úr sjóðum
- Fimmtudagur, 17. september 2009, Innlent Segir atvinnulífið stefna í stöðvun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































