Ekki lengra komist með Icesave-málið
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
Engin tímatakmörk eru á ríkisábyrgð vegna Icesave-innistæðna og ekki er kveðið á um rétt Íslands til að fá úrskurð dómstóla um greiðsluskyldu sína í nýjum samþykktar- og viðaukasamningi Íslands, Breta og Hollendinga sem fjármálaráðherra undirritar í dag.
Hins vegar er gert ráð fyrir að búið verði að greiða upp Icesave-skuldbindingarnar að fullu árið 2024. Þá er hnykkt á þeirri skoðun íslenskra stjórnvalda að þau viðurkenni ekki greiðsluskyldu sína, bæði í frumvarpi sem ríkisstjórnin leggur fram í dag og í sameiginlegri yfirlýsingu landanna þriggja sem kynnt verður í kjölfarið.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að hún teldi niðurstöðuna ásættanlega og að ekki hefði verið lengra komist með málið. „Það er alveg ljóst í okkar huga að hagsmunir íslensku þjóðarinnar eru meiri að klára þetta mál, eins langt eins og við gátum komist með það, heldur en að skilja málið eftir í uppnámi,“ sagði hún.
Þá sagði hún að með þessari niðurstöðu myndi Ísland fljótlega fá endurskoðun efnahagsáætlunar sinnar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og spáði hún því að hún yrði tekin fyrir hjá AGS í þarnæstu viku. „Þá mun losna um 123 milljarða, Norðurlandalánin og lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til þess að styrkja okkar gjaldeyrisvaraforða.“ Í framhaldinu yrði hægt að lækka stýrivexti og aflétta gjaldeyrishöftum sem hvorttveggja myndi hafa jákvæð áhrif á stöðugleikasáttmálann.Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sögðust bjartsýn á framgang frumvarpsins í þinginu enda hefðu þingflokkar beggja ríkisstjórnarflokka samþykkt það fyrir sitt leyti.
Sagði Steingrímur að með samningnum féllust Bretar og Hollendingar „að uppistöðu til“ á alla fyrirvara Alþingis frá í ágúst „sem lúta að fullveldi landsins, eignum, ríkis og seðlabanka erlendis, að niðurstaðan ætti ekki að hafa áhrif á óskorað forræði Íslendinga yfir sínum auðlindum og annað í þeim dúr. Sömuleiðis er tekinn inn í viðaukasamninginn fyrirvari er varðar forgangsröð við útgreiðslu úr búinu.“
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent 70% vilja hafna Icesave
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Farið verði fram á skýringar AGS
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Umræða um Icesave hafin á ný
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Ríkisábyrgðin falli niður 2024
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































