Fyrsta dauðsfallið hér
Átján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdum svonefndrar svínaflensu, A(H1N1). Stúlkan veiktist fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar.
Greint var frá þessu á blaðamannafundi sem nú stendur yfir með fulltrúum Landspítala, sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Kemur fram í tilkynningu að öll umönnun og meðferð, sem stúlkan naut í veikindum sínum heima hjá sér og á Landspítala, hafi verið mjög góð og í samræmi við aðstæður.
26 sjúklingar á Landspítala með svínaflensu
Inflúensan færist enn í aukana, einkum á höfuðborgarsvæðinu en einnig víða á landsbyggðinni. Undanfarnar þrjár vikur lætur nærri að staðfest tilfelli hafi tvöfaldast í hverri viku miðað við fjöldann í vikunni þar á undan. Álag hefur að sama skapi aukist talsvert á starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar, bæði í heilsugæslunni og á Landspítala.
Um hádegisbil í dag voru 26 sjúklingar á Landspítala vegna inflúensunnar, þar af fjórir á gjörgæsludeild. Frá því á föstudaginn var, 16. október, hafa fimm inflúensusjúklingar verið lagðir inn á spítalann og þrír verið útskrifaðir á sama tíma.
3660 tilkynningar hafa borist
Um 60 manns hafa verið lagðir inn á Landsspítala vegna inflúensunnar frá upphafi faraldursins.
Frá 29. júní til 18. október 2009 höfðu borist alls 3660 tilkynningar um inflúensulík einkenni eða staðfest inflúensutilfelli á Íslandi samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Staðfest tilfelli eru orðin alls 479.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Flensan komin á alvarlegt stig -
Steinunn Ásta Ásgrímsdóttir Stelpan sem dó úr svínaflensunni. -
-
Ólöf Anna Brynjarsdóttir Fyrsta dauðsfallið. -
Daníel Ingi Sigþórsson Villandi fréttir
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. október 2009, Innlent 6 á gjörgæslu með H1N1
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Þjáðist af lungnasjúkdómi
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Tafir á bólusetningu
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Enginn lagður inn vegna svínaflensu
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Bóluefni til landsins í dag
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































