Velferðarútgjöld hafa vaxið
Tryggingastofnun ríkisins er ein af lykilstofnunum íslenska velferðarkerfisins. Þorvaldur Örn Kristmundsson
Heildarútgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr tæplega 5,7% af landsframleiðslu árið 1980 í ríflega 8,9% af landsframleiðslu 2008, en það samsvarar 132 milljörðum króna á því ári.
Þetta kemur fram í nýju riti Hagstofunnar. Velferðarútgjöldin hafa ríflega þrefaldast að magni á tímabilinu miðað við verðvísitölu samneyslu og ríflega tvöfaldast á mann.
Árið 2008 runnu 413 þúsund krónur til þessa málaflokks á mann samanborið við 181 þúsund krónur í byrjun níunda áratugarins á verðlagi 2008.
Útgjöld til fjölskyldna og barna er umfangsmesti útgjaldaliðurinn, en til þess málaflokks runnu rúmlega 37,6 milljarðar króna 2008, eða 2,5% af landsframleiðslu. Útgjöld vegna örorku og fötlunar námu 34,9 milljörðum króna og hækkuðu um 6,6 milljarða króna milli ára. Þá námu útgjöld vegna öldrunar 33,1 milljarði króna og hækkuðu um 4 milljarða króna milli ára. Framlög vegna atvinnuleysis voru 5,4 milljarðar króna 2008 og hækkuðu um 2,3 milljarða króna frá fyrra ári.
Í riti Hagstofunnar er einnig gerð grein fyrir útgjöldum til almennrar félagsverndar hér á landi samkvæmt svonefndu ESSPROS flokkunarkerfi Sameinuðu þjóðanna, en það nær til afskipta opinberra aðila og einkaaðila af félagsvernd.
Útgjöld til félagsverndar árið 2008 námu 325,6 milljörðum króna eða 22,1% af landsframleiðslu. Um 40% útgjaldanna 2008 voru vegna slysa og veikinda (heilbrigðismála), en það samsvarar ríflega 8,8% af landsframleiðslu. Til verkefna vegna öldrunar fóru rúmlega 22% útgjaldanna eða 4,9% af landsframleiðslu. Þá vógu útgjöld vegna örorku og fötlunar og sömuleiðis fjölskyldna og barna þungt, en ríflega 13% útgjalda til félagsverndar runnu til hvors verkefnasviðs eða 2,9% af landsframleiðslu.
Samanburður á félagsvernd milli Norðurlanda og ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu sýna að árið 2006 ráðstöfuðu Svíar til dæmis 30,7% af landsframleiðslu sinni til félagsverndar og Danir 29%, Norðmenn 22,6%, Færeyingar 24% og Finnar 26,3%. Á því ári rann 21% landsframleiðslu hér á landi til félagsverndar eða 247 milljarðar króna. Á Evrópska efnahagsvæðinu runnu að meðaltali 26,9% af landsframleiðslu ríkja þess til félagsverndar árið 2006.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Norræn velferð undir stjórn Sjálfstæðisflokks -
Jakob Falur Kristinsson Velferðaútgjöld -
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 23. febrúar 2010, Innlent 11% aukning á opinberum útgjöldum
- Þriðjudagur, 10. mars 2009, Innlent Staðan versnaði um rúma 300 milljarða
- Þriðjudagur, 2. desember 2008, Innlent 106 milljarðar til fræðslumála
- Föstudagur, 3. október 2008, Innlent Kostnaður við félagsvernd jókst um 25,7 milljarða
- Mánudagur, 19. júlí 2010, Innlent Halli á ríkissjóði 9,3% af landsframleiðslu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































