Gleymdu 200 milljörðum
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sakaði þingmenn vinstri grænna í þingræðu fyrir stundu um að hafa gleymt 200 milljarða króna vaxtagreiðslum vegna afborganna af Icesave-skuldahalanum í umræðum sínum um kosti samningsins. Birgir Ármannsson sagði fyrirvara Icesave nú útvatnaða.
Áður en Guðlaugur steig í pontu sakaði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sjálfstæðismenn um að halda uppi efnahagslegum heimsendaspám. Fyrirvararnir, sem Pétur H. Blöndal þingmaður hefði kallað „tæra snilld“, héldu.
Guðlaugur Þór gerði hins vegar ummæli Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingflokksformanns Vinstri grænna, um að greiðsluþakið myndi halda eftir nýja Icesave-samkomulagið að umtalsefni. Þau ummæli sýndu að augljóst væri að Guðfríður Lilja þyrfti að kynna sér málið betur.
Með 200 milljarða áætluðum vaxtagreiðslum af Icesave hlyti stuðningur VG við samninginn að vera í uppnámi. Hér væri á ferð upphæð sem jafngilti fjórum nýjum háskólasjúkrahúsum.
Birgir Ármannsson var harðorður um nýja samkomulagið og sagði að í því hefðu fyrirvararnir verið „tættir niður“ og „þynntir út“, líkt og Ragnar H. Hall hefði bent á.
Hinu bæri að halda til haga að Ragnar teldi nýja samkomulagið „snöggtum skárra“ en það leit út í júní.
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi einnig um Icesave-samkomulagið og sagði ekki hægt að treysta á að eignir Landsbankans gangi upp í 90% af Icesave-kröfunum.
Ísland þyrfti að greiða vexti af Icesave-skuldinni þótt enginn hagvöxtur væri í landinu á greiðslutímabilinu, eða árlega 15 til 50 milljarða króna, samanborið við 10 milljarða árlegt framlag ríkisins til Háskóla Íslands.
Hætt sé við því að enginn hagvöxtur verði á greiðslutímabilinu og þá kunni sú staða að koma upp að margir telji nauðsynlegt að virkja og ganga á auðlindir landsins eins og hægt er. Á börnum, sem nú séu 1 til 2 ára, kunni að hvíla ævarandi skuld ef enginn hagvöxtur verður á tímabilinu.
Bloggað um fréttina
-
Eiður Svanberg Guðnason Breyting í Hádegismóahöll -
Axel Jóhann Axelsson Ótrúleg léttúð í umræðu um hundruð milljarða -
Haraldur Haraldsson Gleymdu 200 milljörðum/er þetta bara krækiber í helv. -
Jakob Falur Kristinsson Endutekið efni
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Sagði framkomu Steingríms hneyksli
- Þriðjudagur, 20. október 2009, Innlent Fyrirvörum varpað fyrir róða
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Fyrirvarar hafa enga þýðingu
- Föstudagur, 21. ágúst 2009, Innlent Ekki hægt að afgreiða málið í núverandi mynd
- Föstudagur, 21. ágúst 2009, Innlent Munum tala eins lengi og þarf
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































