Játuðu þjófnað við Geysi

Geysir í Haukadal.
Geysir í Haukadal. mbl.is/RAX

Lögreglan á Selfossi hefur upplýst  þjófnað úr ferðamannaverslun við Geysi í Haukadal. Hafa þrír karlmenn og ein kona játað brotið. Allt er fólkið erlent að uppruna. Mun lögreglan gefa út ákæru í dag og tilkynna Útlendingastofu um málið sem mun taka ákvörðun um hvort fólkinu verður vísað úr landi.  

Vörum fyrir um 400 þúsund krónur var stolið úr versluninni við Geysi í síðustu viku. Lögregla fékk ábendingu um að mennirnir hefðu verið staddir á Geysissvæðinu í hádeginu í gær, líklega til að endurtaka leikinn frá því vikunni áður. Hafði starfsfólk verslunarinnar eftirlit með mönnunum inni í versluninni. 

Mennirnir þrír yfirgáfu búðina án þess að eiga þar viðskipti eða hafa nokkuð með sér en lögreglan handtók þá síðan í Grímsnesi og flutti þá í fangageymslu á Selfossi. Í kjölfarið fóru lögreglumenn frá Selfossi til Reykjavíkur til að leita að fjórða manninum sem grunaður var um aðild að þjófnaðinum í ferðamannaversluninni.  Hann fannst eftir að leitað hafði verið á tíu stöðum í höfuðborginni.  Þá var kona handtekin í Reykjavík í morgun og færð til yfirheyrslu á Selfossi. 

Lögreglumenn á Selfossi hafa í morgun yfirheyrt fólkið.  Fyrir liggur játning í málinu og það upplýst en þrír karlanna ásamt konunni stóðu að þjófnaðinum.  Fjórði karlmaðurinn átti engan þátt í brotinu og hafði góða og gilda fjarvistarsönnum þar sem hann dvaldi í fangelsi á þeim tíma sem þjófnaðurinn átti sér stað.   

Fólkið er grunað um að hafa staðið að búðahnupli og þjófnuðum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert