Undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembætta frestað
„Sýslumannafélagið fékk í gær tilkynningu frá ráðherra dómsmála um að ráðuneytið hefði, að svo stöddu frestað þeirri vinnu sem átti að búa að baki væntanlegri sameiningu embætta,“ segir Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði við vefinn bb.is.
„Og það kom ekki fram í þessum pósti hvort og þá hvenær sú vinna hæfist að nýju. Alþingismenn hljóta að taka afstöðu til þess við umræður um fjárlagafrumvarpið hvort embættum verði fækkað. En eins og sakir standa erum við með óbreyttan fjölda embætta og ljóst að engar breytingar verða á því á þessu fjárhagsári.“
Kristín segir liggja fyrir að sýslumannsembættið á Ísafirði muni ná fram þeirri hagræðingarkröfu sem ráðuneytið gerir. Hún er ekki viss um hvort koma þurfi til uppsagna en segir stefnt að því að halda sama starfsmannafjölda hjá embættinu og veita sömu þjónustu. Ljóst sé hins vegar að hagræðingin muni auðvitað þýða skert kjör hjá einhverjum starfsmanna.
Kristínu þykir fólk hafa farið dálítið fram úr sér í umræðu um fyrirhugaða sameiningu, því ekkert hafi verið byrjað að ræða hvar þjónustuútibú hvers embættis yrðu, né hversu margir starfsmenn ættu að vinna þar. Nefnd sem skoða hafi átt hvernig hagkvæmast væri að vinna að sameiningu hafi ekki einu sinni verið tekin til starfa.
Dómsmálaráðherra féllst á tillögur starfshóps þess efnis að sameina lögregluumdæmi svo þau verði sex að tölu frá næstu áramótum. Jafnframt kynnti ráðherra sýslumönnum hugmynd um fækkun umdæma úr 24 í sjö, en útibú verða þó víðsvegar um landið. Miðað var við að breytingarnar tækju gildi um áramótin.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembætta frestað/??????
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Nýr sýslumaður í Reykjavík
- Föstudagur, 19. mars 2010, Innlent Nýr forstjóri Útlendingastofnunar
- Þriðjudagur, 31. ágúst 2010, Innlent Ákvarðanir liggja ekki fyrir
- Fimmtudagur, 25. september 2008, Innlent Baksvið: Sagan bak við deiluna á Suðurnesjum
- Þriðjudagur, 19. janúar 2010, Innlent Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands sameinuð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































