Kristín háskólarektor í Japan
Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor. Brynjar Gauti
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, er stödd í Japan um þessar mundir í boði japanskra stjórnvalda og heimsækir japanska háskóla og fyrirtæki í Tókýó og Kýótó. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HÍ.
Þar kemur fram að Kristín hafi í gær haldið erindi í Waseda háskólanum í Tókýó þar sem hún kynnti Háskóla Íslands og ræddi hlutverk og mikilvægi háskóla í alþjóðlegum efnahagsþrengingum. Waseda háskóli sérhæfir sig í félags- og hugvísindum, og er einn af samstarfsskólum HÍ í Japan.
Íslenska hefur verið kennd við Waseda háskólann frá 2003, og stunda nú um 40 nemendur nám í íslensku. Kristín hitti í heimsókn sinni nemendur frá Háskóla Íslands sem eru að læra japönsku og viðskiptafræði við Waseda háskólann. Kristín heimsótti jafnframt Keio háskóla sem er einkaháskóli með sérhæfingu í hagfræði og lögfræði.
Háskóli Íslands er þegar í talsverðu samstarfi við japanska háskóla vegna kennslu í japönsku við hugvísindasvið HÍ. Nemendur sem komnir eru áleiðis í námi í japönsku fara flestir til Japan og dvelja eitt eða tvö misseri við japanska háskóla. Jafnframt hafa nemendur sótt til framhaldsnáms við japanska háskóla í ýmsum greinum. Þá er nokkuð um vísindasamstarf milli landanna, m.a. á sviðum félagsvísinda, lyfjafræði, jarðvísinda og augnlæknisfræði.
M.a. hefur Friðbert Jónasson, prófessor í augnlækningum, unnið rannsóknir í samvinnu við Kanazawa háskólann í Japan og Ármann Höskuldsson, fræðimaður við Jarðvísindastofnun HÍ, hefur stundað rannsóknir í samstarfi við háskólann í Okayma.
Fyrir rúmu ári stofnaði japanskur kaupsýslumaður, Toshizo Watanabe, styrktarsjóð við Háskóla Íslands til að hvetja til frekara samstarfs milli Íslands og Japan. Watanabe stundaði nám við Brandeis háskólann í Bandaríkjunum á sama tíma og Geir Haarde og tókst með þeim traust vinátta. Sjóðnum er ætlað að styrkja íslenska nemendur og vísindamenn til að dvelja við japanska háskóla og jafnframt til að styðja japanska nemendur og vísindamenn sem hingað vilja koma. Úthlutað verður úr sjóðnum í fyrsta sinn á næsta ári.
Á morgun mun Kristín heimsækja Safn framtíðarvísinda og nýsköpunar og Tókýó háskóla. Þar er háskólarektor boðið sérstaklega að skoða Rannsóknastofnun í jarðskjálftafræði og Landbúnaðar- og lífvísindasvið. Þá mun hún heimsækja Tókýó Institute of Technology, og fá m.a. kynningu á framhaldsnámi í lífvísindum og líftækni.
Japönskum stúdentum við Háskóla Íslands hefur fjölgað á undanförnum misserum og eru þeir nú 13 talsins.


































