Fréttaskýring: Tifandi tímasprengja í fangelsunum

Fangaklefi stækka

Fangaklefi mbl.is/Heiddi

Morgunblaðið Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is

Rekstur fangelsa er liður í grunnþjónustu samfélagsins sem nauðsynlegt er að sé til staðar en óhætt er að segja að fangelsin hafi lítinn skerf fengið af góðærinu, áætlanir um byggingu nýs fangelsis hafa frestast ár frá ári og bráðabirgðaúrræði tafist.

Öll fangelsi á Íslandi eru nú yfirfull og ástandið viðkvæmt. Á LitlaHrauni sitja nú rúmlega 90 fangar, þrátt fyrir að þar sé aðeins gert ráð fyrir 77 föngum og í fyrsta skipti í sögu fangelsisins er því tvímennt í suma klefana.

Á sama tíma þurfa aðrir dæmdir menn að bíða mánuðum saman eftir að afplána refsivistina, á einu ári hefur boðunarlistinn lengst úr 140 manns í tæplega 250.

Ástandið er nú í raun þannig að ekkert má út af bregða til að veruleg vandræði verði. Ef lögreglan handtæki á morgun hóp manna fyrir gróft ofbeldisbrot væri bókstaflega hvergi pláss til að halda þeim.

„Í eðlilegu árferði á auðvitað ekki að vera 100% nýting á fangelsum en þannig er það í dag,“ sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri þegar ástand fangelsisins á Litla-Hrauni var kynnt fyrir allsherjarnefnd Alþingis í gær.

„Það fer að bresta á að refsingar fyrnist þar sem menn hafa beðið of lengi, og sektarrefsingar eru þegar byrjaðar að fyrnast.“

Einangrunarklefar tvímenntir

Litla-Hraun er eina fangelsi landsins þar sem sá möguleiki er til staðar að aðskilja fanga eftir ástandi þeirra og eðli glæps. Þar vistast m.a. allir þeir sem eru sakhæfir geðveikir, þar sem sjúkrahúsin taka ekki við þeim.

„Við sitjum því uppi með ofsalega veika menn, en það er hvergi pláss til að fara með fanga ef eitthvað kemur upp á þar sem menn eru hættulegir sjálfum sér eða öðrum. Og þetta vita fangarnir, “ segir Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður Litla-Hrauns.

Vegna þrengsla hefur verið gripið til þess að setja í almenna notkun einangrunarklefa á sérstökum öryggisgangi og eru þeir jafnvel tvímenntir. Ástandið er því afar viðkvæmt fyrir uppþotum eða árekstrum og þakkar Margrét það góðu samstarfi starfsfólks og fanga að til þess hafi ekki komið.

Tungumálaörðugleikar

Að meðaltali er fimmti hver fangi á Íslandi erlendur. Þetta hlutfall er þó jafnan hærra á Litla-Hrauni, þar hafa dvalist menn frá allt að 12 þjóðum í einu og flestir tala aðeins sitt eigið tungumál.

Samskipti geta því verið erfið en túlkaþjónusta er afar dýr kostnaðarliður og reiðir fangelsið sig því á heftið „Mál í myndum“ sem gefið var út af Landspítala.

Með því að benda á myndir geta fangarnir að einhverju leyti gert sig skiljanlega án túlks.

Í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg er ástandið enn verra.

Þar er fyrsta viðkoma erlendra afbrotamanna, sem margir hverjir koma hingað á fölsuðum skilríkjum gagngert til þess að brjóta af sér og hefur þeim fjölgað mjög að sögn Páls, eru nú 44 að meðaltali á ári en voru 3 fyrir 10 árum. „Nú erum við með þar á einum gangi sex útlendinga af ólíku þjóðerni við vitum bókstaflega ekkert um þá, ekki neitt.“ Samsetning fangahópsins á Íslandi hefur því tekið miklum breytingum á síðustu árum, hingað eru nú m.a. komnir hættulegir menn sem þurfa nánari gæslu en aðrir fangar.

Páll bendir hinsvegar á að á boðunarlista eru líka menn sem eru á áttræðis- og níræðisaldri en aðeins á Litla-Hrauni er hægt að skilja á milli þessara fanga.

„Í hinum fangelsunum ægir öllu saman. Hættulegir hópar og hættulausir, ungir sem aldnir, í neyslu og ekki, þetta eru hópar sem ekki er forsvaranlegt að hafa alla á sama stað. Þetta er bara tifandi tímasprengja og ég skil að það sé erfitt að bregðast við í kreppu, en þarna er raunveruleg þörf, núna.“

Nýtt öryggisfangelsi nauðsyn

Til að bregðast við plássleysinu stendur til að leigja húsnæði í grennd við Litla-Hraun sem hýst gæti 15-20 fanga til bráðabirgða.

Auglýst var eftir aðstöðu í haust og koma þrír staðir til greina en málið er enn til vinnslu. Þegar fjármagn er komið væri hægt að gera rýmin tilbúin á nokkrum vikum að sögn Páls. „Þetta er nauðsynlegt og leysir hluta vandans til bráðabirgða, en ekki þann hluta sem er erfiðastur og snýr að hættulegustu brotamönnunum, við getum ekki sett þá þarna. Til framtíðar þurfum við lokað öryggisfangelsi, það verður að gerast,“ segir Páll.

Bygging nýs öryggisfangelsis í Reykjavík hefur verið til umræðu í áratugi og samkvæmt langtímaáætlun stendur líka til að byggja við Litla-Hraun þar sem rúmlega 40 fangarými bættust við. Dregist hefur að þetta komist til framkvæmda en Páll segir það tæpast geta beðið lengur.

„Þegar þetta tvennt er frágengið eru fangelsismál á Íslandi orðin þannig að við getum borið okkar saman við hinn siðmenntaða heim, en núna getum við illa rekið þetta með sómasamlegum hætti.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Silky Terrier strákar til sölu
Þrem bræðrum er óráðstafað úr þessu goti. Þeir eru heilsufarssk., örmerktir og ...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...