5 ára fangelsi fyrir brot gegn dóttur sinni

Hæstiréttur Íslands. stækka

Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Brynjar Gauti

Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í 5 ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni sem var 2 og 3 ára þegar það gerðist. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninn í 2 ára fangelsi. Hæstiréttur dæmdi manninn til að greiða dóttur sinni 1,5 milljónir króna.

Maðurinn, sem hefur setið í gæsluvarðhaldi í tæpt ár, var ákærður fyrir að hafa í mörg skipti haft samræði og önnur kynferðismök en samræði við stúlkuna. Hæstiréttur segir, að það sé hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi haft önnur kynferðismök við telpuna en samræði, en læknir sá er skoðaði hana, taldi útilokað að um samræði hefði verið að ræða. Því var maðurinn, þrátt fyrir neitun hans, fundinn sekur um að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við dóttur sína á tímabili frá september 2007 til nóvember 2008. 

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að kynferðisbrot mannsins hefðu beinst að barnungri dóttur hans, sem hann einn hefði haft forsjá með, og hefðu staðið í rúmt ár. Þau hefðu verið ítrekuð, alvarleg og til þess fallin að hafa mikil og varanleg áhrif á telpuna. 

Skjólstæðingar félagsmálayfirvalda 

Bæði maðurinn og barnsmóðir hans voru  skjólstæðingar félagsmálayfirvalda frá því að dóttirin fæddist í maí 2005. Þau eru bæði öryrkjar og stunduðu ekki vinnu. Strax eftir fæðingu barnsins var talin ástæða til að fylgjast með hvernig því vegnaði sökum vandamála foreldranna.

Forsjárhæfni foreldranna var metin í júní 2005, skömmu eftir að dóttirin kom í heiminn. Meginniðurstöður sálfræðings voru þær að hann taldi stefnuleysi, geðsjúkdóma og ýmsa andlega bresti einkenna líf þeirra og hugsun þeirra væri of óskýr og dómgreind slök, ekki síst í tengslum við framtíð barnsins og uppeldi þess. Taldi sálfræðingurinn nauðsyn á miklum og langvarandi stuðningi við fjölskylduna.

Barnaverndarnefnd höfðaði mál í febrúar 2007 á hendur foreldrunum og var gerð sú krafa að þau yrðu svipt forsjá. Krafan náði ekki fram að ganga.

Í apríl 2008 hóf stúlkan að sækja leikskóla. Frá upphafi skólagöngu sýndi hún mikið óöryggi og vanlíðan. Í október sama ár fór félagsráðgjafi frá félagsþjónustu í leikskólann og ræddi við stúlkuna og vaknaði þá grunur um að hún hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Þegar leið á rannsóknina beindist grunur því æ sterkar að föður stúlkunnar og að lokum að honum einum. Hann hefur hins vegar alltaf neitað sök. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TEXASBORGARAR
Heimagerðir hamborgarar og franskar úr 100% gæðahráe...
ORLOFSHÚS Á AKUREYRI
Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einb...
Kæli- og frystiklefar - allar stærðir
Kæli- og frystiklefar sem eru einstaklega auðveldir í uppsetningu. Hægt er að fá...
1 dekk 640/13 til sölu.
Ónotað dekk 640/13 til sölu á 5þúsund kall. uppl.8691204...
 
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...