Svandís Svavarsdóttir heljarmenni

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Svandís Svavarsdóttir er hvött áfram í ályktun sem stjórn ungra Vinstri grænna hefur sent frá sér. Segir í ályktuninni að Svandís sé heljarmenni að standa við sannfæringu sína þrátt fyrir mótbyr í samfélaginu.

Á ályktuninni segir að erfitt sé stundum að þora að standa við það sem maður viti að sé rétt, í raun nánast útilokað. Þurfi þá heljarmenni til og Svandís sé búin að sýna það eigi við hana.

Þá segir: Það er auðvelt að missa sjónar á stóra samhenginu og langtímahagsmunum þegar heil þjóð stendur frammi fyrir jafnslæmu efnahagsástandi og Íslendingar. Þá er auðvelt að stíga bensínið á stóriðjutrukknum í botn – virkja, bræða, reyna að græða. „Í þessum ólgusjó, þá gengur ekkert að hugsa um smámál,“ segja stóru karlarnir og eiga þar við smælkið sem má hunsa: umhverfi Íslands, lofthjúp heimsins – já, og þá litlu spurningu hvort sé yfir höfuð til næg orka í landinu til að seðja stóriðjulosta þeirra gráðugustu.

Ennfremur lýsir stjórnin yfir þeirri skoðun að vandamál landsins verði ekki leyst með með botnlausri stóriðjustefnu. Slík stefnahafi verið rekin í 18 ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og hún hafi ekki forðað landinu frá kreppunni. Segja megi að í raun hafi stefnan gert skellinn enn harðar en hann hefði ella orðið. Hún krefjist þess að horfið sé frá heilbrigðri skynsemi; stórframkvæmdir séu hlutaðar í sundur til að svindla þeim í smáskömmtum í gegnum umhverfismat, allri framtíðarorku landsins sé troðið í örfáar mengandi verksmiðjur og öllum árum sé róið að einni einustu lausn úr ólgusjónum.

Að endingu segir í ályktuninni:
Nú þarf ríkið að taka á honum stóra sínum og styðja sem flest það sem getur reist  íslenskt efnahagslíf við. Í því starfi er ekki skynsamlegt að einblína á stóriðjuna, sem þegar hefur brugðist. Skynsamlegt er að hugsa til framtíðar, líkt og umhverfisráðherra gerir.

Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir fullum stuðningi sínum við Svandísi Svavarsdóttur og treystir henni til að fylgja sannfæringu sinni nú sem endranær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert