Svör Íslands afhent í Brussel
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, t.v og Michael Leigh, yfirmaður stækkunarskrifstofu Evrópusambandsins Utanríkisráðuneytið
Íslensk stjórnvöld skiluðu í dag inn svörum við spurningalista framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem er hluti af samræmdu umsóknarferli að ESB.
Svörin telja 2600 blaðsíður auk fylgiskjala og er blaðafjöldi samtals 8870 síður. Unnu öll ráðuneytin að svörunum, auk fjölda undirstofnana.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun á grundvelli svaranna gefa leiðtogaráði ESB álit sitt á því hvort Ísland uppfylli viðmið til að verða formlegt umsóknarríki að Evrópusambandinu.
Spurningalistinn skiptist í almennan hluta sem skiptist svo aftur í tvo kafla, annars vegar um hagkerfið og efnahagsmál og hins vegar um stjórnkerfið almennt, lýðræði og mannréttindi.
Að öðru leyti skiptist listinn í þrjátíu og þrjá kafla. Fjallar fyrsti kaflinn um frjálst vöruflæði, næsti um frjálsa för vinnuafls og svo framvegis.
Segir í tilkynningunni að vinna við svörin hafi gengið hratt og vel fyrir sig en nú eru liðnar sex vikur frá því að Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB, afhenti íslenskum stjórnvöldum spurningalistann, eða þann 8. september sl.
Flýtti það fyrir að oft var hægt að nýta svör sem stjórnvöld höfðu þegar unnið, til dæmis í tengslum við rekstur EES samningsins og í skýrslum til OECD, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og Sameinuðu Þjóðanna.
Sérfræðingarnir sem unnu að svörunum voru bæði innan stjórnsýslunnar og utan hennar og var til að mynda náið samráð haft við starfshóp utanríkismálanefndar um Evrópumál. Þá fóru bæði samtök og hagsmunaaðilar yfir svörin, svo sem Bændasamtökin, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samband íslenskra sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins, Neytendasamtökin, talsmann neytenda og sérfræðinga úr háskólasamfélaginu.
Framkvæmdastjórnin mun hefja byrja að fara yfir svörin og verður áframhaldandi samráð og samskipti við fulltrúa hennar eins og þörf krefur á meðan að á vinnslu álits framkvæmdastjórnarinnar stendur.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Bjarnason Nokkuð mörg hjörl þetta -
Axel Jóhann Axelsson Ótrúleg skriffinnska -
Jón Valur Jensson Þjenustulund alls íslenzka embættiskerfisins innsigluð í Brussel -
Finnur Birgisson Rangt svar á bls. 73/86, kafla 16
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Hraðaspurningunum svarað á næstu dögum
- Miðvikudagur, 29. júlí 2009, Innlent Íslendingar vilja á methraða í viðræður
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Búa sig undir spurningaflóðið frá ESB
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Bændasamtökin fóru ekki yfir svörin
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Svör við ESB-spurningum að verða tilbúin
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































