Fangi með 40 grömm af amfetmíni

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt refsifanga á Litla-Hrauni í tveggja mánaða fangelsi fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Í DVD-spilara fangans fundust 40 grömm af amfetamíni við klefaleit í janúar sl. Fanginn játaði brot sitt skýlaust.

Fanginn á að baki langan og fjölbreyttan sakarferil allt frá árinu 2001. Hann hefur á þeim tíma hlotið 17 refsidóma. Síðast fyrir líkamsárás, gripdeild og frelsissviptingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert