Tillaga um lífeyrissjóði felld

Frá ársfundi ASÍ.
Frá ársfundi ASÍ. mbl.is/Golli

Tillaga Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, og 15 meðmælenda um að launafólk yfirtaki stjórnir  lífeyrissjóða, var felld í leynilegri atkvæðagreiðslu á ársfundi Alþýðusambands Íslands í dag með 79,3% atkvæða gegn 20,7%.

Samkvæmt tillögunni átti að fela miðstjórn ASÍ að vinna að því að atvinnurekendur hverfi úr stjórnum lífeyrissjóða og að unnið verði að breytingum á reglugerðum sjóðanna með þeim hætti að sjóðsfélagar kjósi sér stjórnarmenn með beinni kosningu. 

Hart var deilt um þessi mál undir lok ársfundarins, sem nú er að ljúka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert