Nýr formaður ÖBÍ kosinn í dag

Myndin er frá öðrum fundi ÖBÍ.
Myndin er frá öðrum fundi ÖBÍ. mbl.is/Kristinn

Öryrkjabandalag Íslands kýs sér nýjan formann í dag á aðalfundi samtakanna sem nú fer fram á Grand hótel í Reykjavík. Núverandi formaður gefur ekki kost á sér aftur. Tveir eru í framboði.

Tveir eru í framboði til formannsembættisins, þeir Guðmundur Magnússon, varaformaður Öryrkjabandalagsins og Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar. Núverandi formaður, Halldór Sævar Guðbergsson, gefur ekki kost á sér aftur af persónulegum ástæðum.

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, flutti ræðu á aðalfundinum í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert