Kúvending og forsendurnar eru brostnar

Úr álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. stækka

Úr álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Ljósmynd/Hreinn Magnússon

„Stjórnvöld hafa kúvent í atvinnustefnu sinni og forsendur stöðugleikasáttmálans um uppbyggingu stóriðju eru brostnar,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi. Hann vísar þar til ræðu Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra á ársfundi ASÍ í sl. viku.

Í ræðunni sagði Árni Páll nauðsynlegt að fara nýjar leiðir í atvinnumálum með því að skattleggja orku- og auðlindanýtingu. Ráðherra sagði að grátkór og kveinstafir útgerðar- og álfyrirtækja yrði sífellt háværari og ágengari.

„Ef sjávarútvegur og stóriðja geta ekki þolað hóflega innköllun veiðiheimilda og hóflega auðlindaskatta er spurning hvort við séum yfir höfuð að veðja á réttan hest. Verðum við þá ekki að leita annarra kosta um framtíðaratvinnuuppbyggingu?“ sagði ráðherra.

„Ég veit ekki um hvað maðurinn er að tala,“ segir Tómas Már Sigurðsson. „Við hjá Alcoa leggjum mikið til samfélagsins. Við keyptum þjónustu á síðasta ári fyrir tæpa tíu milljarða króna og greiddum laun fyrir hálfan fimmta milljarð. Beinar skattgreiðslur okkar í fyrra voru um fjórir milljarðar króna að ónefndum hafnargjöldum og raforkureikningum,“ segir forstjóri Alcoa sem finnst ræða ráðherrans einkennast af sleggjudómum.

„Þegar ég hlustaði á þessa ræðu félagsmálaráðherra fór um mig kaldur hrollur,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Nánar er fjallað um þetta málí Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.

Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins

Í gær, 23:28 „Gaman að þessum stjórnmálafræðingum sem fjölmiðlar tala helst við. Þegar stjórnarflokkarnir fá ærlega rassskellingu heitir það ávallt „fjórflokkurinn“. Það var vandamál „fjórflokksins“ þegar margir voru óákveðnir og enginn annar valkostur var kominn fram,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »
Lögreglumenn við Holtavörðuheiði.

Ökumenn í vanda vegna hálku

Í gær, 22:24 Allmikið hefur verið um umferðaróhöpp á Holtavörðuheiði í dag og fram á kvöld vegna hálku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi hafa bílar lent út af veginum en engin slys þó orðið á fólki. Meira »

Hestar sluppu eftir bílveltu

Í gær, 22:20 Jeppabifreið með hestakerru í eftirdragi valt út fyrir veg í grennd við Grundartanga á tíunda tímanum í kvöld. Ökumaður hlaut minniháttar meiðsli og hestarnir eru taldir hafa sloppið ómeiddir. Jeppinn er talinn ónýtur og hestakerran var töluvert löskuð. Meira »

Snjóar í höfuðborginni

Í gær, 21:44 Snjóað hefur lítilsháttar í höfuðborginni í kvöld. Á morgun er spáð suðvestan átt á landinu, víða 8-15 m/s.   Meira »

Fljótsdalshérað vann Hveragerði

Í gær, 21:19 Fljótsdalshérað vann Hveragerði í fyrstu útslitaviðureign Útsvars í RÚV í kvöld. Leikar fóru 68-64. Keppnin var æsispennandi. Meira »

Nokkrir skjálftar í kvöld

Kort yfir jarðskjálfta á landinu.
Í gær, 22:11 Skjálftavirkni hefur verið suðaustur af Húsafelli í kvöld. Nokkrir skjálftar hafa mælst þar frá klukkan 18.45, þeir stærstu 1,9 stig. Stærsti jarðskjálfti dagsins mældist hins vegar 2,5 stig, 20 km norðaustur af Siglufirði. Meira »

Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu

Breytt sveitarfélagaskipan á höfuðborgarsvæðinu er talin æskileg.
Í gær, 21:23 Tæplega sjötuíu prósent alþingismanna, sveitarstjórnarfulltrúa og framkvæmdastjóra sveitarfélaga telja æskilegt að breyta sveitarfélagaskipan á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var fyrir innanríkisráðuneytið. Meira »

Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði

Átök á Íslandsmótinu í júdó.
Í gær, 20:41 „Á blautum dögum renna óslitnar vatnsbunur inn í æfingaherbergið og þar með liggja nýju júdódýnurnar undir skemmdum.“ Þetta sagði fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um aðstöðuna hjá Júdódeild UMFN um leið og hún kallaði eftir bættu húsnæði. Meira »

Vel á annað þúsund á Bessastöðum

Sigurður Magnús Magnússon, 28 mánaða, ræðir við Dorrit Moussaieff forsetafrú á Bessatöðum í dag.
Í gær, 20:20 Vel á annað þúsund manns lögðu leið sína á Bessastaði í dag en forsetasetrið var opið almenningi sem liður í Safnanótt 2012. Um var að ræða fólk á öllum aldri, mikið af fjölskyldufólki og ungu fólki, og samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta tókst afar vel til. Meira »

Fíkniefni ætluð fanga fundust

Fíkniefni.
Í gær, 19:06 Smokkur með fíkniefnum fannst á salerni Landspítala í gær eftir að yfirmenn á Litla-Hrauni vöruðu spítalann við að fangi sem þangað var að koma myndi fá þau afhent þar. Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Akureyrarstofa óánægð með Alþingi

Bókasafn.
Í gær, 20:12 Stjórn Akureyrarstofu er ósátt með að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga hafi ekki verið virtur þegar breytingar voru gerðar á lögum um almenningsbókasöfn. Regla um hámarkssektir komi mjög niður á Amtbókasafninu á Akureyri. Meira »

Meirihluti vill kosningar í vor

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 18:59 Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað verði til alþingiskosninga í vor. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Meira »

Gáleysi að fara upp lausan stiga

Á vinnusvæði.
Í gær, 18:56 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Sjóvá-Almennar tryggingar hf. af kröfu manns sem taldi sig eiga rétt til bóta úr ábyrgðartryggingu Ístaks. Maðurinn slasaðist við vinnu hjá Ístaki þegar hann datt úr lausum stiga. Dómurinn taldi slysið rakið til gáleysis mannsins. Meira »

Miklaborg hreinsuð af ásökunum

Í gær, 18:43 Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala hefur hreinsað fasteignasöluna Mikluborg af ásökunum um að ranglega hafi verið staðið að verðmati á íbúð við Byggðarenda í Reykjavík. Segir í úrskurðinum að vinna fasteignasölunnar hafi verið í samræmi við góðar venjur í fasteignasölu. Meira »

Frystir með kvöldinu

Í gær, 18:20 Það frystir víða aftur í kvöld og nótt og áfram verða smáél vestantil. Þar myndast varasöm ísing við þessar aðstæður, þegar hiti er alveg við frostmarkið, segir í upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund

Sigurður Árni Þórðarson.
Í gær, 18:46 Sigurður Árni Þórðarson skilaði tilkynningu um framboð í biskupskjöri til Biskupsstofu í dag. Af því tilefni efnir stuðningsfólk hans til málefnafundar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. Meira »

Karl á áttræðisaldri í haldi

Á vettvangi í Hverfisgötu.
Í gær, 18:22 Karl á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svonefnda. Lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist málinu, auk þess sem bíll mannsins er í vörslu lögreglu en ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir. Meira »

Handtekinn vegna sprengjumáls

Frá vettvangi á Hverfisgötu.
Í gær, 17:41 Karlmaður var handtekinn á Suðurnesjum í dag í tengslum við rannsókn lögreglu á sprengju sem fannst við Hverfisgötu í Reykjavík á síðasta degi janúarmánaðar. Samkvæmt heimildum mbl.is var einnig lagt hald á bifreið. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar vildi ekki tjá sig um málið. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Veislusalur
Til leigu fallegur salur á jarðhæð fyrir veislur. Tekur 65-70 í sæti og 90 í sta...
Gisting Akureyri - gista.is
Notalegar orlofsíbúður miðsvæðis á Akureyri. Uppábúin rúm, handklæði og internet...
MMC Galant 1998
Til sölu Galant 1998 árg ssk 2000 vél ekin 143þ ásett verð 690þ tilboð ath skip...
VW GOLF!
VW Golf 1.6 bsk., árg. 2005, ek. 100 þús., sóllúga, 15" álfelgur, CD, ný sumar- ...
 
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Aðalfundur SFR st...
Leikskólastjóri
Leikskólakennsla
Leikskólastjóri Seyðisfjarðarkaups...
Patreksfjörður rafmagn
Tilboð - útboð
Útboð Vesturbyggð P...
I.o.o.f. 9
Félagsstarf
I.O.O.F. 9[19202088[ I*...