Útigangskindum smalað í fyrramálið á Tálkna
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur standa fyrir smölun á útigangsfé á Tálkna í fyrramálið en talið er að milli fimmtán og tuttugu kindur séu á svæðinu. Síðasta stóra smölun af þessu tagi fór fram fyrir nokkrum árum en alltaf eru einhverjar kindur á svæðinu. Farið verður með þær kindur sem reynast vera eigendalausar í sláturhús.
„Samkvæmt lögum ber hverju sveitarfélagi að standa fjallskil, þ.e að ölllum kindum á svæðinu sé smalað og þær ekki skildar eftir á vergangi,“ segir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar. „Við vilja framfylgja reglum um að lönd séu smöluð og eins verður þetta gert út frá dýraverndunarsjónamiðum, við viljum ekki að kindurnar séu þarna á hryggnum í alls kyns veðrum, að drepast úr hor eða hrynja fram af klettum.“
Segir Ragnar að síðasta smölun af þessu tagi hafi farið fram fyrir nokkrum árum en þá varð að skjóta einhverjar kindur sem höfðu komið sér í sjálfheldu og ekki hægt að nálgast þær. Ávallt sé eitthvað um útigangsfé á svæðinu, við Siglunes og víðar.
Nú hefur sést til sautján kinda á svæðinu en þyrla Landhelgisgæslunnar sem var þarna í gær vegna björgunaræfinga taldi sjö kindur.
Ragnar segir smölunina kosta heilmikið fé og fyrirhöfn því landið sé erfitt yfirferðar en Tálkni er fjallshryggurinn á milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar. Vesturbyggð leggur til fjóra smalamenn sem séu bændur sem þekki svæðið og svipaður fjöldi komi frá Tálknafjarðarhreppi. Þá sé búið að fá björgunarsveitina til þess að aðstoða á báti því féð leiti oft niður í fjöru.
„Við munum smala saman öllu þeim kindum sem á svæðinu eru og reyna svo að finna eigendurnar samkvæmt búmarki. Samkvæmt lögum á sveitarfélagið þær kindur sem eru ómerktar og ef einhverjar slíkar eru þarna verða þær fluttar í sláturhús.“
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. október 2009, Innlent Nítján kindur heimtar af Tálkna
- Mánudagur, 21. september 2009, Innlent Gangnamaður slasaðist við smölun fjár í Héðinsfirði
- Fimmtudagur, 29. október 2009, Innlent Segir féð ekki hafa neitt verndargildi
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Dragi ekki sundur fé í fjárhúsum
- Laugardagur, 4. september 2010, Innlent Hópadagur í Mývatnssveit
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































