Fékk akstursbann á öðrum degi bílprófs
Ungur piltur, sem fór á rúntinn með glænýtt ökuskírteini upp á vasann, var staðinn að hraðakstri í Ártúnsbrekkunni en bíll hans mældist á 128 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 km á klukkustund. Auk sektarinnar fer pilturinn í akstursbann og verður gert að setjast aftur á skólabekk til að ná réttum tökum á akstrinum.
Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru nokkrir tugir ökumanna teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en lögreglan var víða við hraðamælingar.
Tólf réttindalausir ökumenn, tíu karlar og tvær konur, voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu þeirra reyndust þegar hafa verið sviptir ökuleyfi og þrír höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Fjórir þessara ökumanna voru ölvaðir og tveir voru undir áhrifum fíkniefna.
Réttindalaus ökumaður á þrítugsaldri var stöðvaður í umferðinni í gær en sá ók um miðbæinn með ljóslausan eftirvagn í eftirdragi. Við athugun reyndist tengibúnaðurinn einnig í ólagi og þá var bíll viðkomandi sömuleiðis ótryggður.
Um helgina voru þrír ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Aðfaranótt laugardags voru tveir piltar um tvítugt stöðvaðir með stuttu millibilli af þessari ástæðu. Annar var tekinn á Miklubraut en sá var með fullan bíla af farþegum og fleiri en ökutækið er skráð fyrir. Bíllinn var ennfremur ótryggður og því voru skráningarnúmerin fjarlægð. Hinn pilturinn var tekinn á Seltjarnarnesi en sá var á stolnum bíl. Þriðji ökumaðurinn, karl á þrítugsaldri, var stöðvaður í Hafnarfirði aðfaranótt sunnudags. Lögreglan segir að maðurinn hafi verið lítið hrifinn af afskiptum lögreglu og lét mjög ófriðlega. Fór svo að hann var yfirbugaður með varnarúða.
Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og Garðabæ og einn í Kópavogi. Þetta voru sjö karlmenn á aldrinum 19-36 ára og ein kona, 18 ára. Einn til viðbótar var tekinn í nótt en um var að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem var stöðvaður í Kópavogi.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. mars 2009, Innlent Átján ára ók á 132 km hraða
- Þriðjudagur, 14. september 2010, Innlent Margir teknir fyrir hraðakstur
- Þriðjudagur, 29. júní 2010, Innlent Ölvun, víma og hraðakstur
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Stútar og próflausir í umferðinni
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Innlent Ungir menn á ofsahraða
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































