Í loftköstum á götum úti

Ofurhugarnir ungu í Street Passion Crew nota götur, hús og umhverfið til tilþrifamikilla hoppa og heljarstökka. Sú iðja gengur undir nafninu Parkour, en þessir fimmtán ára, íslensku strákar hafa æft þá list með fimleikafélaginu Björk um hríð.  

Þeir viðurkenna að sennilega séu þeir svolitlir spennufíklar að upplagi en leggja áherslu á nauðsyn þess að æfa atriðin innanhúss við góðar aðstæður áður en þau eru reynd á götum úti.  

Þeir sem vilja sjá meira af kúnstum piltanna geta skoðað síðu þeirra á slóðinni www.youtube.com/SpcMedia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert