Í fangelsi fyrir árás á lögreglu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjö karlmenn í óskilorðsbundið fangelsi fyrir árás á lögreglumenn. Mennirnir veittust með höggum og spörkum að tveimur lögregluþjónum, konu og karlmanni, sem voru send í fjölbýlishús við Hraunbæ í Reykjavík í október í fyrra eftir að kvartað hafði verið undan hávaða í húsinu.
Fram kemur í dómnum, að íbúar í húsinu, þar sem samkvæmi stóð yfir, urðu við tilmælum lögreglu um að hætta leiknum og flestir gestir hurfu á brott. Þegar lögreglumennirnir höfðu lokið störfum á vettvangi og voru í þann mund að setjast inn í bifreið sína réðist einn gestanna á lögreglumanninn. Árásarmaðurinn komst síðan inn í húsið þar sem hann og aðrir gengu í félagi í skrokk á lögreglumönnunum.
Samkvæmt ákæru tók einn mannanna m.a. lögreglukonuna hálstaki og annar sparkaði í hnakka lögreglumannsins, sem hlaut fjölmarga áverka á höfði. Konan marðist á höfði og bólgnaði. Lögregluþjónarnir voru fluttir á sjúkrahús og þurfti að sauma fjögur spor í höfuð mannsins.
Fram kemur í dómi héraðsdóms, að við lögreglurannsókn málsins voru allmargir menn yfirheyrðir sem sakborningar, þar á meðal átta menn sem síðar voru ákærðir. Sumir hinna ákærðu sátu um tíma í gæsluvarðhaldi og einnig menn sem ekki sættu ákæru.
Þrír mannanna voru dæmdir í 9 mánaða fangelsi, einn í sjö mánaða fangelsi, þrír í sex mánaða fangelsi og einn var sýknaður. Segir í dómnum, að upphaflega árásin á lögreglumanninn hafi verið algerlega tilefnislaus svo og afskipti hinna af handtöku hans og árás þeirra á lögreglumennina. Virða beri mönnunum það til refsiþyngingar að þeir réðust sem hópur á lögreglumennina. Þeir eigi sér engar málsbætur og því séu ekki forsendur til að skilorðsbinda refsingarnar.
Fram kemur í dómnum, að einn mannanna hafi tvívegis verið sektaður fyrir umferðarlagabrot og annar hefur tvívegis verið ákærður fyrir þjófnað. Aðrir hafa ekki áður komist í kast við lögin.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Refsingar -
Viggó Jörgensson Reka svo allt partíið úr landi. Ekkert réttlætir veru svona ... -
Þórarinn Þ Gíslason ÞAÐ Á AÐ BERA SKILYRÐISLAUSA VIRÐINGU FYRIR LÖGREGLUNNI, ÞAÐ ER ... -
Haraldur Eyvinds Þrastarson Ráðist á lögregluna
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. janúar 2010, Innlent Fær bætur fyrir fangavist
- Sunnudagur, 19. október 2008, Innlent Eins árásarmanns enn leitað
- Sunnudagur, 19. október 2008, Innlent Fólskuleg árás á lögreglu
- Föstudagur, 13. febrúar 2009, Innlent Fíkniefni á Suðurnesjum
- Föstudagur, 9. júlí 2010, Innlent Þungir dómar fyrir árás
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































