ESB-umsóknin þungbær

Jón Bjarnason.
Jón Bjarnason. mbl.is/Kristinn

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag, að hann gæti sagt það alveg  heiðarlega og beint frá hjartanu, að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi verið sér þungbær svo ekki sé meira sagt.

„Ég hef þó lagt á það áherslu að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið stæði sem best að allri vinnu sem af því er krafist í aðildarferlinu," sagði Jón.

Hann sagði að fljótlega þurfi að skipa aðalsamninganefnd og samninganefndir á fagsviðum vegna væntanlegra aðildarviðræðna. Hans bjargfasta skoðun væri, að nauðsynlegt sé að hver samninganefnd fái strax samningsskilyrði í umboð sitt til að vinna eftir og þau skilyrði liggi algjörlega ljós fyrir af hálfu sjávarútvegsins. Útilokað væri að samþykkja að þessar nefndir verði settar af stað umboðslausar og þeirra eina verkefni verði að ná bara samningi.

„Ástæða þessa er auðvitað sú að komi til þess að brotni á málefnum líkt og full og óskoruð yfirráð Íslendinga yfir sínum eigin fiskimiðum, þá verði því málefni ekki ýtt til hliðar þar til síðast. Þess í stað verði fengin niðurstaða strax um svo mikilvæg málefni þannig að ríkisstjórn, Alþingi, hagsmunaaðilum og þjóðinni allri gefist færi á að taka afstöðu til hversu langt eigi að ganga," sagði Jón m.a.

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, sagði á fundinum að afstaða útvegsmanna til aðildar að ESB byggi á þeim grundvallarsjónarmiðum að Íslendingar fari einir með forræði yfir fiskimiðunum, hafi samningsforræði við skiptingu veiðiréttar úr deilistofnum og tali eigin máli á vettvangi alþjóðastofnana. Mikilvægt væri að tryggja að arður af nýtingu auðlinda skili sér til íslensks samfélags.

„Ég er þess fullviss að þjóðin mun aldrei samþykkja aðildarsamning sem felur í sér afsal á yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni," sagði hann.

Ræða Jóns Bjarnasonar

Ræða Adolfs Guðmundssonar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert