Hver bendir á annan í Icesave
Mark Flanagan, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í málefnum Íslands, sagði á blaðamannafundi í Washington í dag að töfin á endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands tengdist óbeint deilunni við Breta og Hollendinga um Icesave. Sjóðurinn hefði verið að bíða eftir lausn þeirrar deilu vegna þess að aðrir lánveitendur, Norðurlöndin, hefðu viljað sjá lausn þeirrar deilu áður en þau veittu sín lán.
„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur aldrei sett formlegt skilyrði fyrir því að Icesave-deilan verði leidd til lykta. Aldrei. Það hefur aldrei verið hluti af formlegum skilyrðum okkar fyrir áætluninni,“ sagði Flanagan. „Áhrif Icesave á tímasetningu endurskoðunarinnar voru óbein, tengdust almennri fjármögnun áætlunarinnar. Vegna þess að aðrir lánardrottnar settu þetta sem skilyrði þurftum við að bíða þar til skilyrðunum yrði fullnægt,“ bætti Flanagan við. Hann sagði ekkert um hvaða lánardrottnar settu þetta skilyrði.
Þetta stangast algerlega á við þær upplýsingar sem Jón Sigurðsson, formaður samninganefndar Íslands um gjaldeyrislán, gaf í ágúst þegar Icesave-frumvarpið fór í gegnum Alþingi. Þá sagði Jón:
„Aðalútborgunarskilyrði norrænu lánanna er samþykkt endurskoðunar framkvæmdastjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á framvindu íslensku efnahagsáætlunarinnar.“ Þetta skilyrði væri bundið í lánasamningana við Norðurlöndin fjögur og jafnframt yrði samskonar ákvæði í samningnum við Pólverja um lánafyrirgreiðslu. „Ég tel að næsta skref sé að endurskoðunin verði borin upp í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og þegar hún hefur verið samþykkt, þá er ekkert því til fyrirstöðu að draga á þessi lán,“ sagði Jón þá.
Það er því ljóst að hver bendir á annan þegar Icesave-málið er nefnt í tengslum við áætlun Íslands með AGS.
Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti í gær að veita Íslandi aðgang að öðrum hluta lánafyrirgreiðslu sjóðsins upp á 168 milljónir dollara, um 20,6 milljarða króna. Endurskoðunin á efnahagsáætluninni tafðist um rúmt hálft ár.
Bloggað um fréttina
-
Axel Þór Kolbeinsson Icesave og AGS sápuóperan -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Hættum að taka lán -
Sólveig Adamsdóttir Ekki ég, þú. -
Snorri Bergz Ekki benda á mig... -
Ægir Óskar Hallgrímsson Iceslave == ESB == Lán samþykkt!! -
Kristinn Pétursson Fjárlaganefnd Alþingis - og Alþingi Íslendinga ber rík skylda til, ... -
Jón Baldur L'Orange Hringadrottinssaga: Hringavitleysan heldur áfram -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Óábyrgt fram úr hófi. -
Friðrik Hansen Guðmundsson Hver er sannleikurinn um dráttinn á afgeiðslu láns AGS?
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ísland kann að skorta stuðning
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Ísland uppfyllir skilyrði AGS
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Ósammála um lán til Íslands
- Mánudagur, 14. desember 2009, Innlent Flanagan: Icesave í fjórða sæti
- Miðvikudagur, 13. janúar 2010, Innlent Líklegt að AGS-lán frestist
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































