Skelfileg skilaboð frá Hæstarétti
Vilhjálmur Bjarnason
Hæstiréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn fyrrverandi stjórn Glitnis. Stjórnin var áður dæmd til að greiða Vilhjálmi 1,9 milljónir kr. „Þetta er talið rúmast innan heimilda sem hluthafafundur veitti félaginu þannig að stjórnir félaga þurfa ekki að gæta ráðdeildar,“ sagði Vilhjálmur eftir dómsuppkvaðninguna og bætti við að skilaboð Hæstaréttar séu skelfileg.
Vilhjálmur fór í mál þar sem Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri bankans, seldi bankanum hlutabréf á yfirverði, sem öðrum hluthöfum bankans bauðst ekki.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu, að stjórn Glitnis hafi hvorki gætt hagsmuna bankans né hluthafa þegar hún gekk frá kaupum á hlutum Bjarna á yfirverði. Stjórnin hafi einnig mismunað hluthöfum bankans. Henni hafi borið að sýna ráðdeild við meðferð eigna bankans en það hafi hún ekki gert í þessu tilfelli. Hafi stjórnin bakað sér skaðabótaábyrgð með þessari samningsgerð og beri að greiða Vilhjálmi bætur.
Allt er heimilt
Vilhjálmur sagði eftir að niðurstaða héraðsdóms var ljós að um kennslustund í félagarétti hefði verið að ræða. Annað hljóð var í strokknum eftir að Hæstiréttur hafði kveðið upp lokadóm. „Það er búið að taka aðra kennslustund og það er allt heimilt. Þetta eru skelfileg skilaboð frá Hæstarétti.“
Vilhjálmur byggði bótakröfu sína á því, að honum hafi ekki verið gefinn kostur á því að selja bankanum hlutabréf sín á genginu 29, eins og Bjarni fékk, og kaupa þau aftur á genginu 26,66 sem var markaðsgengi bréfanna þennan dag.
Í samræmi við samþykkt hluthafafundar
Í samtali við Morgunblaðið eftir að héraðsdómur var kveðinn upp sagði Ólafur Eiríksson, lögmaður stjórnarinnar, að ákvörðun stjórnarinnar um hlutabréfakaupin hafi verið í samræmi við samþykkt hluthafafundar Glitnis frá febrúar 2007. „Þessi heimild var aftur samþykkt í febrúar 2008, níu mánuðum eftir þessi viðskipti,“ segir Ólafur, en þessar málsástæður voru lagðar fram fyrir dómi.
Líkt og áður segir féllst Hæstiréttur á rök Ólafs í meginatriðum.
Bloggað um fréttina
-
Guðjón Sigþór Jensson Hneyksli í Hæstarétti -
Gísli Foster Hjartarson Ja hérna hér.... -
Axel Pétur Axelsson HæstiÓréttur Íslands -
Páll Jónsson Leiðinda móðursýki -
Njörður Helgason Hávörn Hæstaréttar. -
Jón Pétur Líndal 1-0 fyrir útrásarvíkingum. -
Jakob Þór Haraldsson Sorglegur hlutabréfamarkaður -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Mismunun lögleydd -
Páll Andrés Lárusson Einhverfur Hæstiréttur ? -
Þráinn Jökull Elísson Er þetta það sem koma skal? -
Bjarni Kjartansson Svo eru menn hissa á Bretum!!!!!! -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Er í lagi að byrla mönnum eitur? -
Þorsteinn Siglaugsson Furðulegur dómur -
Úrsúla Jünemann Aldrei aftur hlutabréf -
Þórarinn Þ Gíslason FYRST ER ÞETTA : NÝ TEGUND AF BARNANÍÐI Á ÍSLANDI ... -
Finnur Bárðarson Hæstiréttur sér um sína -
Páll Vilhjálmsson Siðasnauð lagatækni Hæstaréttar
Innlent »
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Gætu þurft að greiða út 35 milljarða króna
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Fyrrum stjórn Glitnis áfrýjar dómi
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Vilhjálmi dæmdar bætur
- Fimmtudagur, 21. janúar 2010, Innlent Hæstiréttur staðfestir úrskurð um afhendingu gagna
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Glitnisdómur umdeildur
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































