Dagpeningar lækka

Dagpeningar á ferðalögum innanlands lækka um 15% samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar. Þannig lækka dagpeningar vegna gistingar og fæðis í einn sólarhring úr 22.132 krónum í 18.700 krónur.

Dagpeningar vegna gistingar í einn sólarhring verða 10.400 krónur, og lækkar um rúmlega 26%,  fæði hvern heilan dag er 8300 krónur og lækkar um rúm 4% og fæði í hálfan dag 3150 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert