Félagsfundur VR í nóvember
Stjórn VR samþykkti á fundi í vikunni að fela formanni að undirbúa almennan félagsfund í nóvember.
Tillögu fjögurra stjórnarmanna VR um félagsfund til þess eins að ræða aðild VR að Alþýðusambandinu var vísað frá á stjórnarfundinum á þeirri forsendu, að VR eigi ekki beina aðild að ASÍ sem og að félagsfundur geti ekki ákveðið að stjórn VR fái umboð til að yfirtaka þær starfsskyldur sem ASÍ gegni fyrir hönd VR.
Í tilkynningu segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, að félagsfundur mikilvægur liður í umræðum milli stjórnenda félagsins og félagsmanna um félagið og stöðu þess. Mikilvægt sé að félagsmenn ræði aðild VR að Landsambandi íslenskra verzlunarmanna en ekki séu forsendur til að halda félagsfund um það efni eitt og sér.
Þá hafi félagsfundur ekki heldur ákvörðunarvald um úrsögn úr LÍV því til þess að úrsögn sé gild verði hún að hljóta samþykki 2/3 atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Kristinn segir, að staða VR í innan verkalýðshreyfingarinnar verði tekin fyrir í stefnumótunarvinnu félagsins sem sé að fara af stað, eins og öllum stjórnarmönnum hafi verið kunnugt um frá fyrstu fundum stjórnar í vor. Fagleg og vönduð umræða um málið verði að eiga sér stað áður en teknar verði afdrifaríkar ákvarðanir um framtíðina. Yfirlýsingar stjórnarmannanna fjögurra nú veki því upp spurningar um hvort markmið þeirra sé að reyna að þvinga fram afstöðu félagsmanna áður en umræða um málið hefst.
Fyrirhugað er að halda almennan félagsfund þann 30. nóvember þar sem félagsmenn geta rætt stöðuna í félaginu og þar með talið aðild VR að LÍV, stöðu efnahagsmála, komandi stefnumótun félagsins og hvaðeina sem þeim hugnast.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Innlent Fara fram á félagsfund í VR
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Innlent Sögulegar kosningar hvernig sem fer
- Sunnudagur, 11. janúar 2009, Innlent Harðari stéttabarátta framundan
- Föstudagur, 7. nóvember 2008, Innlent Vilja stjórn VR burt
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Innlent Fyrstu allsherjarkosningar VR
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































