Jólabakstur með Sniglum

Meðlimir Sniglabandsins þurftu að grípa til óvenjulegra aðferða við að hljóðblanda 22 ára jólalag upp á nýtt fyrir nýju jólaplötuna sína. Eina leiðin til að bjarga upprunalegu upptökunni var að baka hana í ofni við vægan hita í sólarhring.

 Hvort sem fólk elskar eða elskar að hata lagið Jólahjól með sniglabandinu þá verður ekki hjá því komist að það er óheyrilega fastsetið ef það á annað borð kemst inn undir heilabörkinn á manni.

Sniglabandið vinnur nú að nýrri jólaplötu,  Jól meiri jól með tíu nýjum jólalögum og svo hinu gamalkunna Jólahjóli.

Þegar upprunalega múltí-track segulbandsspólan fannst rykfallin uppi á háalofti kom í ljós að hún hafði ekki enst sem skyldi en óvenjulegar björgunaraðgerðir báru tilætlaðan árangur og mun endurhljóðblönduð útgáfa fljóta með á plötunni Jól meiri jól.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert