Bráðvantar litlar íbúðir
Það bráðvantar nýjar ódýrari íbúðir á markaðinn. Þetta er mat Samtaka iðnaðarins. Samtökin hafna því að ekki sé þörf fyrir nýbyggðar íbúðir inn á markaðinn.
"Eitt af því sem skapar núverandi vanda á nýbyggingamarkaði er lítið framboð af ódýru húsnæði. Nægt fjármagn, mikil kaupgeta og hækkandi lóðaverð síðastliðin ár varð til þess að of mikið var byggt af stórum lúxusíbúðum. Skipulagsyfirvöld þurfa því að hugsa dæmið upp á nýtt og bjóða lóðir þar sem hægt verður að byggja 2ja og 3ja herbergja íbúðir á ódýrari hátt en verið hefur, m.a. með því að lækka lóðaverð og færa bílastæði upp á lóðir til að losna við dýra bílakjallara," segir á heimasíðu Samtak iðnaðarins.
Í skýrslu um fasteignamarkaðinn sem Landsbankinn vann fyrir skömmu er komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé þörf fyrir nýjar íbúðir inn á markaðinn fyrr en um mitt ár 2011. Samtök iðnaðarins segjast ekki vilja gera lítið úr því að á markaðinum sé mikið til af óseldum íbúðum en þegar farið sé að tala um að allt að 3200 íbúðir séu tilbúnar eða nær tilbúnar sé rétt að staldra við.
"Tölurnar sem vitnað er í eru unnar af VSÓ og Landsbankanum, í þeim kemur fram að 1.474 íbúðir séu tilbúnar undir tréverk eða lengra komnar, 798 fokheldar og hafin sé uppsteypa á 914 íbúðum. Það getur varla talist nánast fullbúin íbúð sem aðeins er komin með sökkla. Að klára 798 fokheldar íbúðir og til viðbótar 914 íbúðir sem eru í uppsteypu er mikið verk sem margar hendur þurfa að vinna. Því er alrangt að tala um að ekkert þurfi að byggja.
Það er líka alrangt að gefa sér að ekki þurfi að hefja byggingu á nýjum íbúðum fyrr en núverandi lager af eldra húsnæði hefur verið seldur. Algengur byggingatími fjölbýlishúss er eitt og hálft ár, þess vegna þarf að byrja að byggja áður en núverandi lager er búinn auk þess sem ekkert óeðlilegt er við það að eitthvað sé til af óseldu húsnæði á hverjum tíma."
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 28. maí 2010, Innlent Offramboð af tómum íbúðum
- Þriðjudagur, 13. október 2009, Innlent Þarf ekki að byggja fyrr en 2011
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Innlent Fleiri lóðum skilað til borgarinnar en úthlutað var
- Mánudagur, 25. janúar 2010, Innlent Leigumarkaður íbúða allur að lifna
- Fimmtudagur, 19. mars 2009, Innlent Gagnrýna fréttaflutning
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































