Vilja leggja niður alla aðstöðu til trúariðkunar innan HÍ

Háskóli Íslands
Háskóli Íslands mbl.is/Ómar

Stjórn Ungra vinstri grænna telur farsælast að leggja niður alla aðstöðu til trúariðkunar innan veggja Háskóla Íslands. Hún lýsir einnig furðu á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa innan HÍ, en aðeins þeir sem játa kristna trú hafa þar aðstöðu.

Múslímar hafa að vísu fengið aðgang að kappellunni um tíma en tekið hefur verið fyrir það að nýju. Komið hefur fram að hæstráðendur skólans hyggist koma upp sameiginlegri aðstöðu fyrir alla trúarhópa, að því undanskyldu að þeir sem tilheyra evangelísk-lúthersku kirkjunni fá að halda sinni sérstöku aðstöðu.

„Stjórn Ungra vinstri grænna gagnrýnir þessi áform harðlega, þar sem að greinilegt er að verið sé að mismuna fólki eftir trú þess. Stjórn Ungra vinstri grænna telur það ekki vera hlutverk Háskóla Íslands að byggja upp aðstöðu til trúarlegrar tilbeiðslu, slíkt á að vera á könnu trúfélaga en ekki menntastofnana.

Því telur stjórn Ungra vinstri grænna það farsælast í stöðunni að öll aðstaða til trúariðkunar verði lögð niður innan veggja HÍ. Auk þess sparast þar með pláss sem nýta má fyrir alla nemendur skólans - ekki veitir af,“ segir í tilkynningu frá stjórn UVG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert