Fjöldi funda um Icesave og ESB

Urmas Paet, Eistlandi, Össur Skarphéðinsson, Carl Bildt, Svíþjóð og Maris Riekstinš, Lettlandi. stækka

Urmas Paet, Eistlandi, Össur Skarphéðinsson, Carl Bildt, Svíþjóð og Maris Riekstinš, Lettlandi. mbl.is/Ómar

Utanríkisráðuneytið hefur gert ítarlega grein fyrir fundum sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra  hefur átt vegna Icesave, ESB-umsóknar og stöðu Íslands. Svör um fundi forsætisráðherra eru almennara eðlis en fjármálaráðherra mun fyrst gera nefndum Alþingis fyrir sínum fundum og þá fjölmiðlum.

Morgunblaðið óskaði eftir upplýsingum um við hverja Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi rætt við, persónulega, í síma eða með bréfaskiptum, vegna ESB, Icesave og AGS frá því að ríkisstjórn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingar tók við í febrúar.

Einnig hvenær slíkir fundir eða samtöl hafa átt sér stað.
Aðstoðarmönnum ráðherranna var sent erindið 12. október s.l. og þess farið á leit að þeir beindu fyrirspurninni í réttan farveg.

Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra svaraði 23. október. Svar hans var svohljóðandi:

„Fjármálaráðherra mun á næstunni gera þingnefndum sem fjalla um Icesave málið grein fyrir þeim fundum og samskiptum sem hann hefur átt við forsvarsmenn erlendra ríkja vegna Icesave málsins og AGS að því er það tengist fyrrnefnda málinu. Verða þær upplýsingar aðgengilegar fyrir fjölmiðla um leið og þær hafa verið teknar saman.“

Forsætisráðuneytið 

Frá forsætisráðuneytinu barst svohljóðandi svar í gær:

„Vísað er til fyrirspurnar í tölvupósti 12 okt sl. sem ítrekuð var í dag þar sem beðið er um upplýsingar um hverja forsætisráðherra hafi „rætt við, persónulega, í síma eða með bréfaskiptum, vegna ESB, Icesave og AGS frá því að ríkisstjórn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingar tók við í febrúar sl. Einnig hvenær slíkir fundir/samtöl hafa átt sér stað."

Forsætisráðherra hefur átt fjölmörg samtöl og fundi með innlendum og erlendum aðilum um málefni tengd Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, ICESAVE-málinu og aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Þar á meðal eru fundir með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Evrópusambandsins, framkvæmdastjóra NATO og ýmsum ráðherrum,  sendiherrum og fullrúum erlendra ríkja. Þá hefur forsætisráðherra átt formleg bréfaskipti við forsætisráðherra Hollands og Bretlands vegna ICESAVE málsins en þau hafa þegar verið gerð opinber.

Auk þess hefur verið haldinn fjöldi funda um þessi mál með fulltrúum innlendra hagsmunasamtaka og opinberra stofnana.

Beðist er velvirðingar á því hversu dregist hefur að svara.“

Utanríkisráðuneyti

Eftirfarandi svar utanríkisráðuneytisins barst einnig í gær og er langítarlegast. Það fer hér á eftir í heild sinni:

„Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur átt fjölmörg samtöl og símtöl á síðustu vikum og mánuðum til að gæta hagsmuna Íslands. Hann hefur nýtt hvert tækifæri í samtölum við erlenda stjórnarerindreka til að vekja athygli á málstað Íslendinga og hagsmunum,hvort sem um er að ræða ráðherra eða sendiherra erlendra ríkja, gesti úr stjórnkerfum ríkja eða Evrópusambandsins eða aðra háttsetta gesti.

Ráðherra hefur verið í reglulegu sambandi við fulltrúa Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Jens Henriksson.

Í öllum þessum samtölum kemur utanríkisráðherra fram fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar og um samtöl og fundi hefur verið samráð við
forsætis- og fjármálaráðherra auk þess sem utanríkismálanefnd Alþingis hefur verið upplýst um helstu atriði eftir því sem nefndin hefur óskað.

Utanríkisráðherra hefur átt formlega fundi með nánast öllum
utanríkisráðherrum Evrópu, sumum þeirra nokkrum sinnum og rætt við þá í síma. Þá átti ráðherra fund með framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominique Strauss-Kahn í New York í september þar sem tafir á efnahagsáætluninni voru til umræðu og ræddi málefni Icesave í þrígang við Anders Fogh Rasmussen framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í heimsókn hans til Íslands í ágúst.

Ráðherra hefur verið í formennsku í samstarfi norrænna
utanríkisráðherra allt þetta ár og tekið formlega upp á þeim vettvangi
stöðu efnahagsmála á Íslandi, afstöðu Íslands í Icesave-deilunni og
áætlunina sem samin var í samvinnu við AGS á öllum fundum norrænu utanríkisráðherranna. Þar hafa farið fram ítarleg samtöl við:

  • Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs,
  • Per Stig Möller utanríkisráðherra Danmerkur,
  • Alexander Stubb utanríkisráðherra Finnlands og
  • Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar en hann hefur á síðari helmingi þessa árs veitt ráðherraráði Evrópusambandsins forystu.
    Utanríkisráðherra tók þessi sömu mál einnig upp á fundum sem norrænu utanríkisráðherrarnir héldu með starfsbræðrum sínum frá Eystrasaltsríkjunum;
  • Urmas Paet utanríkisráðherra Eistlands,
  • Maris Riekstins utanríkisráðherra Lettlands og
  • Vygaudas Usackas utanríkisráðherra Litháen á Íslandi í ágúst og í New York í september.

Þá hefur ráðherra á þessum vettvangi og í tvíhliða samtölum við norrænu utanríkisráðherrana, bæði á formlegum fundum og í símtölum rætt stöðu norrænu lánanna, sem eru þáttur í efnahagsáætlun Íslands og AGS og lýst alvarlegum áhyggjum Íslendinga af töfum þess að þau fengjust afgreidd.

Utanríkisráðherra hefur frá því í mars átt þrjá formlega fundi með utanríkisráðherra Bretlands, David Miliband og tvo með Maxime Verhagen utanríkisráðherra Hollands, en auk þess átt samtöl við þá á stærri fundum og í síma. Á þessum fundum hefur ráðherra lýst afdráttarlaust afstöðu Íslendinga til Icesave deilunnar, nauðsyn þess að Hollendingar og Bretar sýndu hinni fordæmislausu stöðu Íslands eftir efnahagshrun skilning, mótmælti beitingu hryðjuverkalaga og gerði grein fyrir nauðsyn þess að ekki yrðu tafir á efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af völdum Breta og Hollendinga. 

Í ferð utanríkisráðherra á reglubundinn fund EES ráðsins í Brussel í maí átti hann 20-30 mínútna langa tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum:

  • Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier,
  • Austurríkis, Michael Spindelegger,
  • Ungverjalands, Peter Balazs,
  • Tékklands Jan Kohut (sem fór með formennsku í ráðherraráði ESB á þeim tíma),
  • Svíþjóðar, Carl Bildt,
  • Danmerkur, Per Stig Möller,
  • Finnlands, Alexander Stubb,
  • Portúgal, Louis Amado,
  • Bretlands, David Miliband,
  • Slóveníu, Samuel Zbogar,
  • Slóvakíu, Miroslav Lajcak,
  • Hollands, Maxime Verhagen,
  • Belgíu, Karel De Gucht,
  • Liechtenstein, Aureliu Frick,
  • Noregs, Jonas Gahr Störe,
  • Evrópuráðherra Írlands, Dick Roche og
  • varautanríkisráðherra Grikklands.

Þá átti hann í sömu ferð fund með Olli Rehn stækkunarstjóra Evrópusambandsins og embættismönnum ESB. Á öllum fundum var rætt um aðildarumsókn Íslands að ESB en sérstaklega var fjallað um afleiðingar efnahagshrunsins og Icesave deiluna á fundum með norrænu ráðherrunum, ráðherrum Þýskalands og Austurríkis, Hollands og Bretlands.

Í ferð ráðherra til Möltu í júní átti hann formlega fundi með
forsætis- og utanríkisráðherra Möltu auk sérfræðinga í stjórnkerfi landsins þar sem fyrst og fremst var fjallað um reynslu smáríkisins af samningaviðræðum við Evrópusambandið og árangur af þátttöku Möltu í ESB.

Í sömu ferð sótti ráðherra ársfund Eystrasaltsráðsins í Helsingör í Danmörku og átti þar tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum:

  • Eistlands, Urmas Paet,
  • Lettlands, Maris Riekstins og
  • Litháen, Vygaudas Usackas,
  • varautanríkisráðherra Póllands, Grażyna Maria Bernatowicz
  • starfandi utanríkisráðherra Úkraínu, Volodomyr Khandohiy, og
  • Evrópumálaráðherra Þýskalands, Gunther Gloser.

Fjallað var um tvíhliða samskipti, stöðu efnahagsmála, efnahagsáætlun Íslands og aðildarumsókn Íslands en sérstaklega var rætt við
þýska ráðherrann um stöðuna í deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga um Icesave.

Á ráðherrafundi EFTA ríkjanna í Hamar í Noregi í júlí gerði utanríkisráðherra grein fyrir stöðunni í efnahagsáætlun Íslands og Icesave deilunni.

Eftir að alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um að hefja viðræður við Evrópusambandið í júlí sendi ráðherra öllum utanríkisráðherrum Evrópusambandsríkjanna bréf og átti símtöl við utanríkisráðherra:

  • Frakklands, Bernard Kouchner,
  • Rúmeníu, Christian Dionescu,
  • Ítalíu, Franco Frattini,
  • Svíþjóðar, Carl Bildt,
  • Litháen, Vygaudas Usackas og
  • Evrópuráðherra Þýskalands, Gunther Gloser.

Utanríkisráðherrar Spánar, Miguel Angel Moratinos, og Litháen, Vygaudas Usackas og Evrópumálaráðherra Frakklands, Pierre Lellouche, hafa komið til Íslands í sérstakar heimsóknir þar sem meginerindið hefur verið að fjalla um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu en utanríkisráðherra hefur í samtölum við þessa ráðherra gert grein fyrir stöðu efnahagsmála eftir hrun, efnahagsáætlunina sem fylgt er og málstað Íslendinga í deilunni við Breta og Hollendinga. 

Á meðan ráðherra sótti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september átti hann formlega 20-30 mínútna langa fundi með:

  • forsetum Tékklands, Vaclav Klaus,
  • Póllands, Lech Kaczynski og
  • Finnlands, Tarja Halonen,
  • utanríkisráðherrum Austurríkis, Michael Spindelegger,
  • Kýpur, Markos Kyprianou,
  • Rúmeníu, Christian Dianconescu,
  • Slóveníu, Samuel Zbogar
  • Slóvakíu, Miroslav Lajcak,
  • Ungverjalands, Peter Balazs,
  • Möltu, Tonio Borg,
  • Ástralíu, Stephen Smith,
  • Lúxemborg, Jean Asselborn,
  • varautanríkisráðherra Þýskalands Reinhard Silberberg og
  • varautanríkisráðherra Búlgaríu.

Einnig eins og áður kom fram, átti ráðherra sérstaka fundi með Dominique Strauss-Kahn framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og sameiginlegan fund með utanríkisráðherrum Bretlands og Hollands. Einnig átti ráðherra ýmis styttri samtöl við ráðamenn annarra landa á meðan á allsherjarþinginu stóð. Í New York var haldinn sérstakur fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þar sem ráðherra tók sérstaklega upp þann drátt sem orðinn var í afgreiðslu lána frá norrænum vinaþjóðum.

Fjármálaráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Kristin Halvorsen frá Noregi.

Fjármálaráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Kristin Halvorsen frá Noregi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur á móti Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra NATO, við Ráðherrabústaðinn.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur á móti Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra NATO, við Ráðherrabústaðinn. Ómar Óskarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
Stóll á reiðhjól
Til sölu þessi stóll. Hann er nánast ónotaður . Bleikur hjálmur getur fylgt. Ver...
Íbúð óskast sem næst Lyngby - Kaupmannahöfn
Erum ungt bar með lítið barn og bráðvantar íbúð til leigu. Erum að fara í DTU sk...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
 
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...