Sjónarmið kvenna komast ekki að

Frá upptökum á Silfri Egils.
Frá upptökum á Silfri Egils.

Kvenréttindafélag Íslands (KRFÍ) hefur gert óformlega könnun á því af hvaða kyni  viðmælendur tveggja vinsælla umræðuþátta hjá Ríkissjónvarpinu og -útvarpinu hafa verið undanfarna tvo mánuði. Um er að ræða þættina Silfur Egils í Sjónvarpinu og útvarpsþáttinn Vikulokin á Rás 1.

Að sögn Halldóru Traustadóttur, formanns KRFÍ kom í ljós að konur eru þar í miklum minnihluta eða um 22-25% viðmælenda.  KRFÍ boðar til súpufundar fimmtudaginn 5. nóvember nk. kl. 12.00-13.00 á Hallveigarstöðum við Túngötu 14 í Reykjavík undir yfirskriftinni. Sýnileiki kvenna í fjölmiðlum á kosningaári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert