Skilanefnd ekki viðriðin samninga við 1998
Skilanefnd Kaupþings hefur engin afskipti haft af málefnum Haga og eigenda fyrirtækisins 1998 ehf. Theodór Sigurbergsson og Jóhannes R. Jóhannsson eru fulltrúar skilanefndar gamla bankans í stjórn Nýja Kaupþings.
Þeir Theódór og Jóhannes fara þó með fimm atkvæði innan stjórnarinnar á móti fimm atkvæðum fulltrúa íslenska ríkisins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur skilanefndin ekki komið nálægt samningaviðræðum um endurskipulagningu skulda 1998 ehf.
Jafnframt er skilanefndin ekki sögð taka afstöðu til úrvinnslu skuldamála einstakra fyrirtækja innan Nýja Kaupþings. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvort mál 1998 hafi verið tekin fyrir innan stjórnar Nýja Kaupþings. Hins vegar er ljóst að fulltrúar skilanefndar Kaupþings munu hafa talsvert að segja um niðurstöðu mála 1998, þar sem þeir hafa helmingsatkvæðavægi í stjórn nýja bankans. Ekki náðist í fulltrúa skilanefndar við vinnslu fréttarinnar.
Nýtt fjármagn frá eigendum?
Í fréttatilkynningu Nýja Kaupþings í gær segir að nú sé kannað hvort eigendur 1998 hafi tök á að koma með eða hafa milligöngu um nýtt fjármagn inn í rekstur félagsins. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að það væri raunin. Finnur vildi hins vegar ekki tjá sig um rammasamkomulag milli bankans og 1998 sem Jóhannes Jónsson greindi frá að lægi fyrir í Morgunblaðinu 31. október sl. Nýja Kaupþing á 95,7% veð í Högum, en eigendur 1998 bera jafnframt hlutfallslega ábyrgð á lánum 1998. Finnur sagði að til greina kæmi að ganga að eignum eigenda 1998.Jóhannes ræðir viðkomandi samkomulag í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að erlendir fjárfestar muni koma með nýtt fjármagn inn í félagið sem verði nýtt til að gera upp skuldir 1998. Jóhannes segir Nýja Kaupþing jafnframt munu eignast hlut í 1998. „Með því er hámarksendurgreiðsla til bankans tryggð,“ segir í greininni. Þegar haft var samband við Jóhannes í gær vildi hann ekki tjá sig en vísaði á lögmann.
Þann 30. október sl. var tilkynnt að skilanefnd Kaupþings hefði fengið framlengdan frest til að ákveða aðkomu kröfuhafa að Nýja Kaupþingi. Þegar fjármögnun Nýja Kaupþings lauk lá fyrir að eigið fé bankans yrði 72 milljarðar. Skuld 1998 við bankann nemur 48 milljörðum á gengi dagsins í dag, en ekki er víst á hvaða verði skuldin var færð úr gamla bankanum, og því ekki ljóst hvernig vænt afskrift á láninu mun skiptast á milli nýja og gamla bankans. Finnur segir að frestun á ákvörðun skilanefndarinnar tengist ekki málefnum Haga á neinn hátt.


































