31 barn átti í Byr

31 barn var í hópi stofnfjáreigenda Byrs 2008
31 barn var í hópi stofnfjáreigenda Byrs 2008 Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Alls var 31 stofnfjáreigandi í Byr sparisjóði yngri en 18 ára á gamlársdag 2007, samkvæmt upplýsingum frá Byr. Þessi hópur ólögráða stofnfjáreigenda fékk greiddan arð upp á 91.701.235 kr. í apríl 2008 vegna ársins 2007. Þegar aðalfundur Byrs var haldinn 2008 voru stofnfjáreigendur 1.510 talsins.

Nafnverð stofnfjáreignar þessa hóps var samtals 106.443.127 kr. og uppreiknað nafnverð sama dag 208.411.898 kr. Eignarhald þessa hóps nam samtals 0,68% af heildareigninni.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert