Á enn von á svörum
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagðist á Alþingi í dag enn eiga von á svari frá forsætisráðherrum Bretlands og Hollands við bréfum sendum í lok ágúst. Formaður Framsóknarflokks sagði með ólíkindum að forsætisráðherra væri ekki virtur viðlits í þessari milliríkjadeilu, en héldi engu að síður uppi málstað þjóðanna.
Jóhanna brást illa við þeim ummælum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokks, mótmælti þeim og sagðist alls ekki hafa haldið uppi málstað Hollendinga og Breta. Hún hefði til að mynda gagnrýnt málsmeðferðina á opinberum vettvangi við litla ánægju kollega sinna.
Jóhanna ritaði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands, samhljóðandi bréf 28. ágúst sl. Í niðurlagi þess segist Jóhanna tilbúin að koma til fundar við kollega sína eins fljótt og auðið er verði það talið gagnlegt.
Bréfið var sent í kjölfar þess að Alþingi samþykkti með fyrirvörum ríkisábyrgð vegna lánasamninganna um Icesave. Í því eru forsætisráðherrarnir upplýstir um samþykkt Alþingis, og einnig að umræðan í þinginu hafi verið langvinn og eldfim, enda um að ræða stærstu fjárskuldbindingu þjóðarinnar hingað til, sem geti haft langvarandi efnahagsleg áhrif sökum fjölmargra óvissuþátta.
Jóhanna segir ennfremur að Ísland hafi aldrei svikist um þegar fjárhagslegar skuldbindingar eru annars vegar og niðurstaða Alþingis miði að því að Icesave-skuldirnar verði greiddar.
Jóhanna segist treysta því að ráðherrarnir hafi skilning á þörf Íslands fyrir tryggingu í jafnumfangsmiklu máli og hún vonist til að ríkisstjórnir þeirra sýni sanngirni við yfirferð niðurstöðu Alþingis. „Leyfðu mér að stinga upp á því að við, sem forsætisráðherrar, tökum málið upp og í sameiningu hefjum nýja tíð í tvíhliða sambandi. Ef það er talið gagnlegt er ég reiðubúin að koma til fundar við þig,“ segir í bréfi Jóhönnu til forsætisráðherrans breska og þess hollenska.Bloggað um fréttina
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Á ég að hlægja eða gráta.????? -
Jakob Falur Kristinsson Bíður eftir svari
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. nóvember 2009, Innlent Jóhönnu hafa ekki borist svör
- Miðvikudagur, 6. janúar 2010, Innlent Jóhanna ræddi við Brown
- Þriðjudagur, 17. nóvember 2009, Innlent Svarbréf Balkenende til Jóhönnu birt
- Föstudagur, 5. júní 2009, Innlent Lægri vextir og lengri lánstími
- Þriðjudagur, 17. nóvember 2009, Innlent Hollensk stjórnvöld svara
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































